Fréttablaðið - 06.05.2017, Blaðsíða 96
Mikið hefur verið rætt um möguleika Íslands á að rukka gjöld af
ferðamönnum til uppbyggingar
ferðamannastaða. Ýmsar borgir
og lönd hafa farið þá leið að rukka
ferðamenn um sérstakan skatt, þar
má til dæmis nefna Róm, Flór-
ens og Dubrovnik. Nýverið tóku
stjórnvöld í Botsvana í Afríku þá
ákvörðun að rukka alla ferðamenn
um 30 dollara, eða um þrjú þúsund
krónur, við komuna til landsins.
Undanskildir eru þó íbúar innan
SADC-ríkjanna í Afríku sem eru 15
lönd í suðurhluta álfunnar.
Mikil andstaða var við gjaldið
meðal fyrirtækja í ferðamanna-
iðnaðinum. Hugmyndin var fyrst
kynnt til sögunnar á síðasta ári en
gjaldtökunni frestað vegna mót-
mæla samtaka í ferðaþjónustu í
landinu, Hatab. Nú hefur þó verið
ákveðið að rukka alla ferðamenn
um gjaldið frá 1. júní og verður það
greitt við komuna til landsins, á
flugstöðvum og við landamæri.
Landið er afar vinsælt meðal
ferðamanna sem leita helst eftir
því að sjá ljón, fíla, buffalóa, hlé-
barða og nashyrninga í safaríferð-
um. Þá þykir ómissandi að fara til
Okavango-óshólmanna sem sagðir
eru eitt af sjö náttúruundrum
Afríku.
Alls sækja 1,6 milljónir ferða-
manna Botsvana heim ár hvert og
gert er ráð fyrir að fjórir og hálfur
milljarður króna safnist með
hinum nýja skatti. Peningurinn á
að fara í verndun landsins og upp-
byggingu ferðamannastaða.
Ferðamannaskattur settur á í Botsvana
Ferðalög elskenda eru sveipuð dýrðarljóma og botnlausri rómantík. Því er ekki fráleitt
að bera fram bónorð í háloftunum
á leið í paradís. Svona ferðu að því:
l Veldu lengra flug en styttra til
að geta sötrað kampavín, horfst
í augu og lengt sem mest í dýr-
mætu augnablikinu.
l Gættu hringsins sem sjáaldurs
augna þinna. Feldu hann vand-
lega í handfarangri sem þú lætur
ekki úr augsýn.
l Fljúgðu á fyrsta farrými ef
buddan leyfir. Bónorð kallar á
fínustu aðstæður og þjónustu og
líkurnar á já-i aukast!
l Láttu yfirflugfreyjuna vita af
áætlun þinni til að fá vitneskju
um hvenær bestur tími gefst
til bónorðsins og til að undir-
búa kampavínið þegar stundin
kemur.
l Reiknaðu með lófaklappi far-
þega því líklega flýgur fiski-
sagan hratt um borð. Að fara á
skeljarnar skýjum ofar skapar
ógleymanlega minningu.
Bónorð
um borð!
Það er alltaf gaman að ferðast, skoða heiminn og víkka út sjóndeildarhringinn. Hins
vegar eru nokkrar borgir svo
hættulegar að ferðamönnum er
ráðið frá því að heimsækja þær,
þótt eflaust sé áhugavert að koma
þangað. Samkvæmt lista sem
ferðasíðan Escape Here hefur
tekið saman yfir hættulegustu
borgir heims nýtur San Pedro Sula
í Hondúras þess vafasama heiðurs
að vera þar í fyrsta sæti. Hvergi eru
framin fleiri morð í heiminum en í
þeirri borg, auk þess sem vopna-
sala er mikið vandamál. Karachi í
Pakistan er í öðru sætinu, ekki síst
vegna fjölda hryðjuverka og óstöð-
ugs stjórnmálaástands. Í þriðja
sæti er Kabúl í Afganistan en þar
hefur um árabil ríkt stríðsástand
og hryðjuverkaárásir eru tíðar.
Sömu sögu er að segja um Bagdad í
Írak, sem er í fjórða sæti, en þar má
búast við árásum hvenær sem er. Í
fimmta sæti er Acapulco í Mexíkó
og þar á eftir koma Gvatemala í
samnefndu landi, Rio de Janeiro
í Brasilíu og Höfðaborg í Suður-
Afríku.
Hættulegustu
borgir í heimi
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalið er hraðferð um borð, máltíð, forfallavernd og sömuleiðis
BigSeat, eða besta sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur einu sinni
til tvisvar á dag til allra helstu viðskiptaborga Evrópu og Ameríku. WOW Biz
er kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.
8 KYNNINGARBLAÐ 6 . M A Í 2 0 1 7 LAUGARDAGUR
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-A
E
1
0
1
C
C
F
-A
C
D
4
1
C
C
F
-A
B
9
8
1
C
C
F
-A
A
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K