Fréttablaðið - 06.05.2017, Page 116
www.bjarmaland.is sími 770 50 60
bjarmaland@bjarmaland.is
ÚT Í HEIM MEÐ OKKUR!
Gullni þríhyrningurinn og strandir GOA
INDVERSKT SUMAR UM HAUST
14. - 25. nóvember I 11 nætur
339 000
aðeins
Verð
kr.
Já, ég er að velta upp spurn-ingum um hvernig leikhúsið endurspeglar og tekur þátt í að móta sjálfsmynd þjóðar,“ segir Magnús Þór Þorbergs-son, bókmennta- og leik-
húsfræðingur, sem í vikunni
varði doktorsritgerð sína
við íslensku- og menningardeild
Háskóla Íslands: Leiksvið þjóðar:
Þjóð, stétt, sjálfsmynd og mótun
leiklistarvettvangs á Íslandi 1850-
1930. Magnús Þór segir að tíma-
bilið taki mið af því þegar fyrstu
opinberu leiksýningarnar hafi átt
sér stað á Íslandi um 1850 og fram til
1930 þegar byggingu Þjóðleikhúss-
ins var frestað. „Aðalfókusinn er á
þriðja áratuginn og þá einkum árin
eftir að Alþingi ákveður að byggja
Þjóðleikhús þar til sá draumur er
settur á bið af völdum kreppunnar
þegar byggingarsjóðurinn tæmdist.“
Kvöldfjelagið og Gúttó
Magnús Þór segir að á þessum upp-
hafsárum frá 1850 til 1890 hafi leik-
húslífið mest samanstaðið af ómót-
uðum hópum. „Það var engin föst
starfsemi en það sem ég er að skoða
er mikilvægi leikhússins fyrir hug-
myndina um menningarlega sjálfs-
mynd og í að sviðssetja hvað það er
að vera Íslendingur. Maður sér þetta
t.d. í verkum eins og Útilegumönn-
unum eða Nýársnóttinni og fleirum
sem einkennast af menningarlegri
þjóðernishyggju. Svo skoða ég einn-
ig hversu mikilvægt leikhúsið var í
að búa til borgaralega menningu í
Reykjavík.
Fyrstu áratugina voru þetta sýn-
Að mennta, skamma og skemmta á leiksviðinu
Magnús Þór Þorbergsson fyrir framan Iðnó sem var lengi vel heimili Leikfélags Reykjavíkur. FRéttabLaðIð/GVa
Úr sýningu Leikfélags Reykjavíkur á
Gluggum eftir John Galsworthy frá
1925. Mynd/LJósMyndasaFn ÞJóð-
MInJasaFnsIns/óLaFuR MaGnÚsson
menntað þjóðina. „Að þetta sé tæki-
færi fyrir þjóðina til þess að koma
saman, horfa á eigin sögur og sjá
sjálfa sig á sviðinu. Að upplifa sig
líka sem þjóð í salnum og finna
fyrir sér sem samfélagi að horfa á
eigin sögur. Þar kemur upp þessi
hugmynd um menntun bæði þjóðar
og einstaklinga í gegnum leikhúsið.
Sigurður Guðmundsson málari t.d.
hélt ræðu á fundi hjá Kvöldfjelaginu
þar sem hann talaði um að á sviðinu
væri hægt að mennta almenning og
efla þjóðerniskenndina. Tilfinningu
fyrir þjóðinni og vitund hennar fyrir
sögunni. Að þetta væri allt hægt að
kenna á sviðinu.“
Í ritgerð sinni rekur Magnús Þór
svo hvernig áherslan breytist svo úr
því að mennta yfir í að siðvæða. „Við
sjáum að eftir aldamótin verður
mjög algengt að áhorfendur séu
skammaðir fyrir að kunna sig ekki í
leikhúsi. Kunna ekki að haga sér og
vera alltaf á einhverju rápi eða að
tala og hlæja á vitlausum stöðum.
Fólk var þá bæði skammað fyrir
hegðun sína og líka fyrir það að hafa
ekki smekk. Þar sést greinarmunur
á þeim menntuðu og ómenntuðu.
Menntaða siðfágaða borgarastéttin
er að verða sterk og tekur að sér að
kenna öðrum hvernig þeir eiga að
haga sér og nota leikhúsið óspart
til þess.
Það breytist þó hversu vel það er
samþykkt að skemmta. Það er smá
togstreita þarna undir lok nítjándu
aldar, hvort það eigi að gera leik-
hús til þess að mennta og betrum-
bæta samfélagið eða bara til þess að
skemmta. Hrein innantóm skemmt-
un var ekki vel séð. Það var einmitt
það sem fólst í því að skamma fólk
fyrir að hafa ekki smekk og að vera
að eltast við að sjá einhvern vitleys-
isgang á leiksviði. En þetta breytist
með áhugaverðum hætti eftir full-
veldið 1918 og á þriðja áratugnum.
Þá kemur inn ný tegund af gaman-
leikjum, svona borgarlegir svefnher-
bergisfarsar eins og við þekkjum þá
í dag með misskilningi og hurðar-
skellum. Þá er allt í einu skemmt-
anagildið orðið samþykkt. Að það
sé gott að geta hlegið í leikhúsi fyrir
þjóð eins og Íslendinga sem séu ekki
mjög brosmildir.“
siðmenntuð þjóð
Magnús Þór segir að verkefnavalið
hafi líka verið breytilegt. „Á nítj-
ándu öldinni var sterk löngun í það
að sjá leikhúsið leika sitt eigið þjóð-
líf, eins og Matthías Jochumsson
orðaði það. En í byrjun tuttugustu
aldar, árin eftir að heimastjórnin
kemur og fram að fullveldinu,
þá sjáum við mjög öflugt tíma-
bil í sögu Leikfélags Reykjavíkur
þar sem er sett upp mjög mikið af
nýjum íslenskum verkum. Verk eftir
Jóhann Sigurjónsson, Guðmund
K a m b a n o g
fleiri og ég er
m.a. að skoða
hvernig þessi
verk takast á við
þær spurningar
sem eru í gangi
í samfélaginu.
Hver erum við
sem þjóð? Hvert
viljum við fara?
Át ö k i n m i l l i
sve i t a l í f s o g
borgarlífs. Stöðu
konunnar og
fleiri spurningar
sem voru í gangi
í samfélaginu
sem var verið að
takast á við í þessum verkum.“
Magnús Þór bendir á að það sé
merkilegt sem gerist á þriðja ára-
tugnum þegar Alþingi samþykir að
byggja Þjóðleikhús. „Þá hefði mátt
gera ráð fyrir að Leikfélag Reykja-
víkur, sem var svona ígildi Þjóðleik-
húss á þessum tíma, fengi heimili í
Þjóðleikhúsinu. En í staðinn fyrir
að halda áfram á þeirri braut sem
það var á þá breytti það um stefnu
og fór meira að gera sig að evrópsku
stórborgarleikhúsi. Flytja meira
af nýjum erlendum verkum, það
kemur inn ný tegund gamanleikja
og Shakespeare er settur upp í fyrsta
sinn og íslensku verkin stíga svolítið
til hliðar. Þau íslensku verk sem eru
skrifuð fara meira að endurspegla
borgaralegt líf, gerast á borgaraleg-
um heimilum og þá var til að mynda
algengt að tekið væri fram að það
væri píanó í stofunni. Það var jafn-
vel aldrei spilað á það í verkinu en
það var tákn um menntaða stöðu
heimilisins.
Þannig að eftir fullveldið fer
þjóðin að máta sig við hugmyndina
um að vera siðmenntuð evrópsk
menningarþjóð. Frekar en að hverfa
aftur í söguna og skoða hvaðan við
komum þá sjáum við sterka teng-
ingu vaxandi millistéttar við sam-
bærilega strauma í Evrópu.“
ingar sem voru á vegum skólapilta
og nemenda í Prestaskólanum en
svo voru líka menningarforkólfar
í bæjarfélaginu sem stóðu að baki
leiksýningum félaga á borð við
Kvöldfjelagið. Það var svona leyni-
félag menningarlegra þjóðernis-
sinna á milli 1860 og 1874. Það var
nokkur stór hópur sem stóð að baki
Kvöldfjelaginu en svo koma líka inn
borgaraleg félög eins og Góðtempl-
arahreyfingin og fleiri sem settu sitt
mark á leiklistarsöguna. En þegar
við erum komin fram yfir 1890 þá
erum við að sjá svolítið af hópum
verða til á borð við Gúttó og Breið-
fjörðsleikhúsið.“
skamma og skemmta
Magnús Þór segir að grundvallar-
hugmyndin á seinni hluta nítjándu
aldar hafi verið sú að leikhúsið gæti
Magnús Þór Þor-
bergsson varði í
vikunni doktorsrit-
gerð um tengslin á
milli sjálfsmyndar
þjóðarinnar og
upphafsára leik-
húss á Íslandi.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
...Þá var til að
Mynda algengt að
tekið væri fraM að Það væri
pÍanó Í stofunni. Það var
jafnvel aldrei spilað á Það Í
verkinu en Það var tákn uM
Menntaða stöðu heiMilisins.
6 . m a í 2 0 1 7 L a U G a R D a G U R60 m e n n i n G ∙ F R É T T a B L a ð i ð
menning
0
6
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
3
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
C
F
-5
5
3
0
1
C
C
F
-5
3
F
4
1
C
C
F
-5
2
B
8
1
C
C
F
-5
1
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
3
6
s
_
5
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K