Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 6
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R6 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð – fáðu meira út úr fríinu Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . E N N E M M / S IA • N M 82 14 9 BÓKAÐU SÓL Á 2fyrir1 á flugsæti m/gistingu 63.195 Síðustu sætin í maí & júní Frá kr. 63.195 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 63.195 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 88.945 m.v. 2 fullorðna í íbúð. 25. maí í 11 nætur. Frá kr. 69.995 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 69.995 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í gistingu. Netverð á mann frá kr. 79.995 m.v. 2 fullorðna í gistingu. 25. maí í 11 nætur. Frá kr. 151.395 Heimsferðir bjóða upp á jógaferð til hinnar grísku eyju Krítar með Auði Bjarnadóttur jógakennara. Í þessari ferð gefst tækifæri á að rækta líkama og sál við góðar aðstæður í sólinni á þessari dásamlegu eyju. Krít lætur engan ósnortinn með fegurð sinni, menningu, góðum mat og yndislegum eyjaskeggjum! Netverð á mann frá kr. 151.395 m.v. 2 fullorðna í stúdíó 5. júní í 10 nætur. Frá kr. 73.910 m/ekkert fæði innif. Netverð á mann frá kr. 73.910 m.v. 2 fullorðna og 1 barn í stúdíó. Netverð á mann frá kr. 86.945 m.v. 2 fullorðna í stúdíó. 25. maí í 11 nætur. Toxo Hotel & Apartments Stökktu Jógaferð Helios Apartments KRÍT Allt að39.950 kr.afsláttur á mann ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI Stökktu frá kr. 69.995 Aðeins 2 sæti eftir FY RI R2 1 FY RI R2 1 SveITaRSTjóRnIR „Mér finnst bara forkastanlegt  hvernig hefur verið unnið að þessu,“ segir Stefán Óskar Jónasson, bæjarfulltrúi minnihluta E-listans í bæjarstjórn Vestmanna- eyja, um vinnubrögð meirihluta Sjálf- stæðismanna varðandi útgreiðslu húsmæðraorlofs. Kvenfélagið Líkn hafði í heilt ár reynt að innheimta lögbundnar greiðslur frá Vestmannaeyjabæ í svokallað húsmæðraorlof. Full- trúar meirihluta Sjálfstæðismanna neituðu að borga. Þeir vísuðu meðal annars í ályktun sem gerð var á sér- stökum kvennafundi bæjarstjórnar á kvenréttindadaginn 2008 um að greiðsla húsmæðraorlofs „væri ekki í anda jafnréttis“. Meirihlutinn gaf sig ekki fyrr en í síðustu viku eftir að innheimtubréf barst frá lögmanni Líknar. „Þetta brýtur í bága við lög frá 1972 sem eru í gildi og ég hef gert athugasemdir við það á hverjum einasta fundi í bæði bæjar- stjórn og bæjarráði,“ segir Stef- án sem k v e ð s t á v a l l t h a f a verið á móti þessari afstöðu Sjálf- stæðismanna. „Ég er svo hrifinn af konunum í Kvenfélaginu Líkn, að gefast ekki upp fyrir bæjaryfirvöldum,“ heldur Stefán áfram. „Það er ekkert grín að vera með lögfræðinga og í orðaskaki við kjörna fulltrúa í samfélagi sem maður vill eiga heima í að berjast fyrir réttindum sem maður veit að eru hundrað prósent rétt. Þær eiga þetta svo sannarlega skilið.“ Hvorki náðist tal af formanni eða lögmanni Líknar en að sögn Stefáns íhuga kvenfélagskonurnar nú stöð- una í ljósi þess að kröfur þeirra um greiðslu húsmæðraorlofs hafi verið hunsaðar árum saman, ekki bara greiðsla ársins 2016 sem endaði í 603 þúsund króna kröfu með vöxtum. Elliði Vignisson bæjar- stjóri segir að  á kvenna- fundinum í bæjarstjórn á kvennafrídaginn 2008 hafi helsta baráttumálið verið að framlög til kvenna orlofs yrðu afnumin. „Enda myndi þetta ganga í berhögg við þeirra hugmyndir um kvenfrelsi og jafnrétti. Og síðan þá hefur bæjar- stjórn bara fylgt þeirri línu sem konur ákváðu sjálfar,“ segir hann. Málið snúist ekki um peninga. „Konur í bæjarstjórn völdu kvenna- frídaginn og eina kvennafundinn sem haldinn hefur verið í bæjarstjórn til að leggjast gegn akkúrat þessu atriði og þá finnst mér nú þurfa ansi sterk rök fyrir okkur karla sem síðar skip- um bæjarstjórn til að fara gegn því,“ segir Elliði. Og þau rök séu reyndar enn ekki fundin þótt samþykkt hafi verið að greiða Líkn áðurnefndar 700 þúsund krónur. „Við greiðum Kvenfélaginu Líkn framlög en við greiðum þau óháð því hvernig þær nota þau og hvetjum þær til að nota þetta til líknarmála,“ segir Elliði. Því hefur Edda Ólafsdóttir, for- maður Líknar, þegar hafnað í samtali við Fréttablaðið með vísan í lögin. Stefán  gefur lítið fyrir að bæjar- stjórinn vitni til fyrrnefnds kvenna- fundar. „Það var bara bæjarstjórn Vestmannaeyja að álykta. Bæjarstjórn Vestmannaeyja ræður ekki lands- lögum með einhverri ályktun.“ Aðspurður kveðst Stefán hins vegar telja að alveg megi endurskoða lögin um húsmæðraorlof eins og hefur ítrekað verið lagt til á Alþingi. „En á meðan lögin frá 1972 eru í gildi þá ber að fara eftir þeim.“ gar@frettabladid.is Breyta ekki því sem konur ákváðu sjálfar „Í Vestmannaeyjum eru tvenn lög; það eru landslög og svo Eyjalög,“ segir bæjar- fulltrúi sem gagnrýnir afstöðu meirihlutans til húsmæðraorlofs. Þarf sterk rök til að fara gegn ályktun kvennafundar á kvennafrídaginn segir bæjarstjórinn. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum. Fréttablað- ið/Eyþór Gleði á þjóðhátíðardaginn Hópur fólks marseraði um götur Reykjavíkurborgar í gær með norskan fána. Var það ekki til að krefjast sameiningar Íslands og Noregs heldur var fólkið að fagna þjóðhátíðardegi Norðmanna. Fréttablaðið/StEFán 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E 2 -2 F 9 8 1 C E 2 -2 E 5 C 1 C E 2 -2 D 2 0 1 C E 2 -2 B E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.