Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 38
Fyrsta platan
okkar sem nefndist
bara Magnús og Jóhann
sló rækilega í gegn. Ég
verð að viðurkenna að
það kom okkur mjög á
óvart.
Magnús Þór Sigmundsson
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Magnús og Jóhann ætla að flytja mörg af sínum þekktustu lögum á tón-
leikunum og ættu aðdáendur að fá
eitthvað fyrir sinn snúð. Magnús
segir að það sé Börkur Hrafn Birgis-
son, kenndur við Jagúar og Benzin
music, sem eigi hugmyndina að
þessum tónleikum. „Hann hefur
verið drifkrafturinn,“ segir hann en
æfingar hafa staðið yfir í vikunni.
„Börkur hefur gengið með þessa
tónleika í maganum í nokkurn
tíma. Hann langaði að velja nokkur
af lögunum okkar og gera þeim
góð skil. Börkur er sjálfur gítar-
leikari og bróðir hans, Daði, sem er
með honum er hljómborðsleikari.
Þetta eru duglegir strákar sem hafa
verið að vinna með ýmsum tón-
listarmönnum, til dæmis Bubba
Morthens.
Börkur hefur lagt mikla vinnu
í undirbúning og það er mikill
kraftur í honum,“ segir Magnús
en þeir félagar voru síðast með
stórtónleika þegar þeir hituðu upp
fyrir Eagles í júní árið 2011. Við
erum öðru hverju að troða upp
tveir en við erum ekkert sérstak-
lega að ræða það. Núna verðum við
með hljómsveit með okkur, mjög
góða tónlistarmenn.“
Ljúfu lögin
Fyrsta plata Magnúsar og Jóhanns
kom út árið 1972 eða fyrir 45 árum
en leiðir þeirra lágu fyrst saman
í hljómsveitinni Nesmenn. Þegar
sú hljómsveit lognaðist út af árið
1968 héldu þeir félagar samstarfinu
áfram og hafa gert alla tíð síðan.
Þeir eiga aragrúa laga sem hafa lifað
með þjóðinni og verða mörg þeirra
flutt á tónleikunum. Má þar nefna
lög eins og Álfar, Söknuður, Ísland
er land þitt, Ást, Blue Jean Queen,
Jörðin sem ég ann, Í Reykjavíkur-
borg, Þú átt mig ein svo eitthvað sé
nefnt. „Þetta eru lög sem hafa snert
þjóðarsálina en við munum nálgast
þau frjálslega,“ segir Magnús.
„Fyrsta platan okkar sem nefnd-
ist bara Magnús og Jóhann sló
rækilega í gegn. Ég verð að viður-
kenna að það kom okkur mjög á
óvart. Við vorum eiginlega að leika
okkur að taka upp þessi lög á segul-
band í kjallaranum hjá Jóhanni.
Ómar Valdimarsson blaðamaður
frétti af þessu, fékk upptökur
og kom þeim fyrir í einhverjum
menntaskóla. Síðan byrjaði síminn
að hringja og áður en við vissum af
vorum við komnir í sjónvarp og á
sviðið í Háskólabíói með Trúbroti
sem var vinsælasta hljómsveitin.
Þegar ég hugsa um þetta eftir á
finnst mér eins og okkur hafi verið
kastað út í djúpu laugina. Fljótlega
varð svo hljómsveitin Change til.
Jóhann grínaðist með að við yrðum
að standa upp en þá höfðum við
alltaf komið fram sitjandi með
kassagítara. Hann vildi líka breyta
um lagastíl,“ útskýrir Magnús og
bætir við að þeir verði nú sitjandi á
tónleikunum á laugardag.“
Margt að gerast
Fyrir utan tónleikana á laugar-
dag er Magnús Þór að vinna með
Lúðrasveit Þorlákshafnar og Stefáni
Jakobssyni í Dimmu. Lúðrasveitin
ætlar að flytja vel valin lög úr
safni Magnúsar sem Stefán flytur.
Það verða þrennir tónleikar, þeir
fyrstu í kvöld kl. 20.30 í Ráðhúsinu
í Þorlákshöfn, síðan á Hótel Örk á
morgun og í Gamla bíói á laugar-
dag. „Ég verð sögumaður á þessum
tónleikum svo það er nóg að gera.
Ég hef mjög gaman af því að þessi
lög sem fóru burtu frá manni á
sínum tíma skuli koma svona aftur
og aftur í ýmsum útfærslum og með
nýju fólki,“ segir Magnús sem einn-
ig var að taka upp plötu með klass-
ískri útgáfu af lögum sínum. „Það
er ungur maður, Tómas Jónsson,
afar hæfileikaríkur píanóleikari,
sem leikur lögin á flygil. Platan er á
rólegum og ljúfum nótum. Ég held
að þetta sé besta plata sem ég hef
komið að,“ segir hann. „Ég er enn
með plötuna heima og á eftir að
koma henni á markað en þetta eru
sautján lög.“
Þetta er ekki það eina því Magn-
ús Þór er einnig að vinna plötu
með hljómsveitinni Árstíðum sem
kemur út í haust. „Það var æðislegt
að vinna með þessum strákum. Þeir
eru að gera góða hluti.“
Magnús segir að þetta hafi
verið viðburðaríkt ár í tónlistinni.
Nokkur laga hans voru flutt sem
ópera í Hljómahöll en söngvari
var Elmar Gilbertsson. „Það var
líka skemmtilegt. Það er svo ótrú-
legt að hlusta á lögin sín í svona
fjölbreyttum útsetningum,“ segir
Magnús sem býr í Hveragerði með
hænur, hunda og ketti.
Lög sem snerta þjóðarsálina
Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann Helgason verða með stórtónleika í
Bæjarbíói á laugardag en 45 ár eru frá því fyrsta hljómplata þeirra kom út.
Þeir eru ekki óvanir því að vinna saman þessir kappar. Stórtónleikar verða með þeim í Bæjarbíói á laugardagskvöld. MYND/ANTON BRINK
MENNTASKÓLINN Í KÓPAVOGI
HÓTEL- OG MATVÆLASKÓLINN | FERÐAMÁLASKÓLINN | LEIÐSÖGUSKÓLINN
Viðurkenndur bókari
Lykill að góðu starfi
Nám til undirbúnings fyrir próf á vegum atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins skv,
43. grein laga nr. 145/1994 um bókhald. Kennslan fer fram í samvinnu við KPMG.
Kennt er þrjá daga í viku frá kl. 16:30 – 19:30.
Starfsmennt greiðir skólagjöld sinna félagsmanna.
INNRITUN STENDUR YFIR TIL 9. JÚNÍ. Sjá mk.is
Menntaskólinn í Kópavogi
Sími: 594 4000
Gagn legt og áhugavert nám sem nýt ist þér
Frekari upplýsingar veita:
inga.karlsdottir@mk.is
gardar.vilhjalmsson@mk.is
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . M a í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
2
-2
5
B
8
1
C
E
2
-2
4
7
C
1
C
E
2
-2
3
4
0
1
C
E
2
-2
2
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K