Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 58
SKEGGSJAMPÓ
og skeggjaolía
Nýtt í Nettó
Ein af síðustu frumsýn-ingum leikársins verður í Tjarnarbíói annað kvöld þegar leikhópur-inn Lakehouse frum-sýnir Í samhengi við
stjörnurnar eftir breska leikskáldið
Nick Payne. Árni Kristjánsson, leik-
stjóri sýningarinnar og annar stofn-
enda leikhópsins, kynntist verkinu
þegar hann var við nám í Englandi
en nýverið lauk hann mastersprófi
í leikstjórn frá hinum virta skóla
Bristol Old Vic Theater School.
Nýta samböndin
„Þetta var skemmtilegur tími. Það
eru bara fjórir sem komast inn í
þetta nám á ári og ég var sá eini
sem átti ekki enskuna að móður-
máli. Þetta er eins og hálfs árs nám
og allan tímann er það mjög vinnu-
tengt, þannig að maður fær fullt af
tækifærum til þess að vinna í Bristol
Old Vic leikhúsinu sem er ótengt
skólanum. Svo leikstýrði ég á Shake-
speare hátíð í Globe ásamt því að
vinna mitt lokaverkefni.“ Grunnur
Árna var í námi við Listaháskóla
Íslands í námi sem kallast Fræði
og framkvæmd og hann segir að sú
sérstaka blanda sem er innan þess
náms hafi nýst honum vel. „Áður en
ég fór út var ég svo að kenna, leik-
stýra og skrifa þannig að þetta er
orðið nokkur fjölbreytt,“ segir Árni
léttur.
Árni segir að eftir að hann og
unnusta hans, Harpa Fönn Sigur-
jónsdóttir, hafi snúið heim frá Eng-
landi hafi þau ákveðið að ráðast í
að stofna leikhóp. „Við stofnuðum
saman leikhópinn Lakehouse og
Harpa Fönn sér um að framleiða
þessa sýningu og semur einnig tón-
listina en hún hefur áður verið með
tónlist fyrir m.a. Vinnsluna enda er
henni ófátt til lista lagt. Markmiðið
með leikhópnum er að vinna með
ný leikrit, bæði hérlendis og von-
andi erlendis, og nýta svona þau
sambönd sem ég myndaði í mínu
námi í Englandi því í þeim eru ótví-
rætt ákveðin verðmæti sem er um
að gera að nýta.“
Lífið og eðlisfræði
Árni segir að þau hafi valið verkið
Í samhengi við stjörnurnar eftir
Nick Payne vegna þess að þau hafi
séð það sem góðan upphafspunkt.
„Þetta er verk sem vakti mjög mikla
athygli þegar það kom fyrst fram
á sjónarsviðið árið 2012. Það var
síðan sett upp á Broadway með Jake
Gyllenhall og Ruth Wilson árið 2014
og hefur að auki ferðast vítt og breitt
um heiminn.
Verkið virðist alltaf vekja mikla
athygli, bæði er það mikil þraut
fyrir leikara og svo er þetta ein-
staklega frumlega skrifað verk þó
svo sagan sem um ræðir sé eitthvað
sem allir tengja við. Þetta er saga
um tvær manneskjur sem kynn-
ast og verða hrifnar hvor af ann-
arri sem er óneitan lega ekki ýkja
frumlegt en verkið er byggt á lög-
málum skammtafræði og afstæðis-
kenningarinnar. Í mörgum litlum
bútum fáum við að sjá hvernig
verkið þróast út frá ákvörðunum
persónanna tveggja. Þannig að það
er svona leikur að þessu: Hvað ef?
Hvað ef ég hefði gert þetta en ekki
eitthvað annað? Og við fáum að sjá
allar ákvarðanir þeirra lifa samtímis
í mismunandi strengjum.“
Byggt á skammtafræði og afstæðiskenningu
Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne hefur farið sigurför um heiminn og ratar nú á fjalir Tjarnar-
bíós á vegum nýs leikhóps. Leikstjórinn Árni Kristjánsson segir verkið ófyrirsjáanlegt og heillandi.
Árni Kristjánsson leikstjóri er nýkominn heim úr framhaldsnámi á Englandi en á morgun frumsýnir leikhópurinn hans í Tjarnarbíói. FréTTabLaðið/aNToN briNK
birgitta birgisdóttir og Hilmir Jensson í hlutverkum sínum á sviðinu í Tjarnarbíói. MyNd/JuLiE rowLaNd
Þrátt fyrir þessa eðlisfræðilegu
byggingu verksins segir Árni að þeir
sem hafi átt það til að sofa í gegnum
eðlisfræðitímana í menntaskóla
þurfi ekkert að óttast. „Nei, maður
þarf ekki að vera með gráðu í eðlis-
fræði til þess að skilja verkið. Alls
ekki. Þetta er lífið. Líf okkar er soldið
svona og þetta verk er leið til þess
að komast nær því að skilja hvað
lífið er ófyrirsjáanlegt. Það eru svo
margar ákvarðanir sem við tökum
sem gjörbreyta lífi okkar og reyndar
líka ákvarðanir sem við tökum ekki
sjálf. Höfum ekkert um að segja. Það
er eitthvað sem allir tengja við.“
Leikarar og barn
Það eru þau Birgitta Birgisdóttir og
Hilmir Jensson sem fara með hlut-
verk parsins í leikritinu en Árni segir
að verkið feli í sér mikla áskorun
fyrir leikara og því hafi þau farið
þá leið að vera með leikaraprufur.
„Þau stóðu sig bæði alveg æðislega í
prufunum. Birgitta hefur verið fast-
ráðin í Þjóðleikhúsinu síðasta árið
og Hilmir hefur líka verið að gera
ákaflega góða hluti, m.a. hér á leik-
listarjaðrinum. Birgitta og Hilmir
hafa aldrei leikið saman áður en það
hefur verið mjög gaman að blanda
saman þeirra kröftum af því að þau
eru bæði svo skapandi og frumleg en
líka mjög agaðir og tæknilega færir
leikarar.
Að auki þá njótum við líka krafta
Þórunnar Maríu Jónsdóttur sem
hannar leikmynd og búninga af list-
fengi, Hafliði Emil Barðason sér um
ljós og tæknimál og mér til aðstoðar
við leikstjórnina er Ólafur Ásgeirs-
son þannig að þetta er einvalalið.“
Í samhengi við stjörnurnar verður
frumsýnt á föstudagskvöldið en það
er ekki eini draumurinn sem þau
Árni og Harpa Fönn hafa gengið
með í maganum því með haustinu
eiga þau von á sínu fyrsta barni. „Já
mikið rétt. Það er barn á leiðinni
þannig að það er margt í gangi.
Núna er allt að verða klárt fyrir
frumsýninu og svo njótum við þess
líka að leikararnir eiga börn og hafa
verið að gefa okkur ýmis góð ráð
svona í ferlinu enda fyrirmyndar-
fólk í alla staði.“
Það eru svo margar
ÁKvarðaNir sem við
TöKum sem gjörbreyTa LÍfi
oKKar og reyNdar LÍKa
ÁKvarðaNir sem við TöKum
eKKi sjÁLf. Höfum eKKerT um
að segja. Það er eiTTHvað
sem aLLir TeNgja við.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R46 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
2
-2
F
9
8
1
C
E
2
-2
E
5
C
1
C
E
2
-2
D
2
0
1
C
E
2
-2
B
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K