Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 32
Framhald af forsíðu ➛ Mér fannst mikilvægt að skilja eftir eins lítið fótspor á jörðinni eftir fatalínu mína og ég gæti. Ef það er eitthvað sem ég hef lært á síðustu þremur árum í skólanum er að iðnaðurinn í kringum fatahönnun er ekkert sér- staklega fagur og einn sá mest meng- andi í heiminum, í rauninni annar í röðinni á eftir olíuiðnaðinum,“ segir Magna Rún sem ákvað því að vinna umhverfisvæna endurunna línu. „Ég óf marga litla búta úr niður- klipptum hvítum stuttermabolum sem ég fékk úr Rauða krossinum og bútana litaði ég svo með avókadó- steini og hýði sem gefur fallegan bleikan tón. Einnig litaði ég gömul rúmföt með gulu laukhýði og reif svo niður í ræmur og óf í stórum vefstól. Svo litaði ég með indígólit, en hann er einn af fáum náttúrulegum bláum tónum sem er hægt að nálgast,“ lýsir Magna Rún. Hún segir heilmikla vinnu liggja að baki fatalínu sem þessari, sér í lagi þar sem hún ákvað að búa til liti og efni sjálf. „Sem betur fer fékk ég mikla hjálp frá fjölskyldu og vinum. Til að mynda voru móðir mín og systir í fullri vinnu við að vefa 100 búta úr stuttermabolum sem voru svo notaðir í bleika jakkann og bux- urnar,“ segir hún glettin. Hönnunar- og framleiðsluferli útskriftarlínunnar gekk nokkuð jafnt og þétt fyrir sig þó hún viðurkenni að stressið hafi verið nokkuð. „En við erum mjög þéttur og góður hópur í bekknum og pössuðum upp á hvert annað. Ég gæti ekki hugsað mér að „Mér fannst mikilvægt að skilja eftir eins lítið fótspor á jörðinni eftir fatalínu mína og ég gæti,“ segir Magna Rún. Mynd/Anton BRink Blá klæði úr náttúrulegum indigólit. Mynd/leifuR WilBeRg oRRAson Bleiki liturinn fékkst með avókadó- steini. Mynd/leifuR WilBeRg oRRAson Mikil vinna liggur að baki tískulín- unni. Mynd/leifuR WilBeRg oRRAson sýningin gekk hnökralaust fyrir sig. Mynd/leifuR WilBeRg oRRAson Magna Rún vann tískulínu sína úr endurunnum efnum. Mynd/gVA Sólveig Gísladóttir solveig@365.is fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um- fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar- efni. Blaðið fylgir fréttablaðinu daglega. umsjónarmenn efnis: elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Ragnheiður tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 | sólveig gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 sigríður inga sigurðardóttir, sigriduringa@365. is, s. 512 5372 | starri freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.Is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.Is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.Is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.Is, s. 512 5433 hafa verið án þeirra í þessu ferli, því þetta var samvinna þó svo við höfum öll verið að vinna í okkar eigin línu.“ Fyrirsæturnar á útskriftar- sýningunni komu frá Eskimo og dóttir og bekkjarfélagarnir völdu í sameiningu þau módel sem þeim leist best á. „Kennarinn okkar, hún Kata, raðaði módelunum niður á lúkk en öll vorum við með þrjár til fjórar innkomur, svo það myndaðist mikill hasar í skiptingum baksviðs. Við völdum einnig förðun og hár í sameiningu og fengum til okkar Fríðu Maríu förðunarfræðing sem útfærði hugmyndir okkar og sá svo um förðunina á sýningardaginn ásamt sínu teymi.“ Magna Rún segir tískusýninguna hafa gengið vonum framar. „En það var smá hökt í aðalæfingunni sem var haldin klukkutíma fyrr. Þar festist til dæmis eitt módelið í skóm og varð seint í næstu innkomu,“ segir hún og brosir. Nemendur sáu ekki sýninguna sjálfa enda uppteknir við að klæða módelin baksviðs. „Það var samt ótrúleg spenna sem fór um mann þegar lagið byrjaði, en við vorum öll með okkar lag. Það var mikið spennufall eftir sýningu og í raun mjög skrýtið að þetta sé bara búið! Eftir 16-17 tíma vinnudaga síðast- liðna mánuði getur maður loksins andað,“ segir Magna Rún sem ætlar að vinna í möppunni sinni (portfolio) í sumar. „Kannski fer ég eitthvert út í starfsnám eða framhaldsnám næsta haust, það er enn ekki komið í ljós.“ Til að mynda voru móðir mín og systir í fullri vinnu við að vefa 100 búta úr stutterma- bolum sem voru svo notaðir í bleika jakkann og buxurnar. BRONZ OG SKYGGINGAR PALLETTAN Guerlain kynning í Sigurboganum 18. – 20. maí Við kynnum TERRACOTTA Sun Trio, nýja bronz og skyggingar pallettu sem veitir sólkyssta húð, fullkomna skyggingu og einstakan ljóma. Guerlain sérfræðingur verður á staðnum og veitir persónulega ráðgjöf. 20% AFSLÁTTUR af öllum vörum frá Guerlain. 2 kynningARBlAÐ fÓlk 1 8 . m a Í 2 0 1 7 f i M Mt u dAg u R 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E 2 -4 8 4 8 1 C E 2 -4 7 0 C 1 C E 2 -4 5 D 0 1 C E 2 -4 4 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.