Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 22
„Guð hjálpi þeim sem heillast af
hagfræðitölum hveitiframleiðsl-
unnar en staldrar ekki við til að
dást að kornaxinu. Þótt peningar
falli vissulega ljúfar ofan í reikni-
líkön og prósentur en aðrir þættir
mannlífsins, þá skipta aðrir hlutir
ekki síður máli. Kærleikur, virðing
og mannréttindi eru ekki síður
mikilvæg og ber að hafa hugfast í
störfum bæði þings og ríkisstjórnar.
Höfum það hugfast að við vorum
ekki bara kosin til að taka ákvarð-
anir og fara með völd, heldur til
þess að þjóna almenningi í landinu.
Gerum það, verum góð.“
Óttarr Proppé í þingræðu 2016
Formaður flokksins ykkar, hann Óttarr Proppé, slæddist inn í borgarpólitíkina í kjölfar Jóns
Gnarrs. Hann var utangarðsmaður
í huga samfélagsins sem ögraði
ríkjandi stjórnmálamönnum sem
höfðu fjarlægst fólkið í landinu og
vilja þess í mikilvægum málum.
Síðan var hann kjörinn á þing og
í stjórnarandstöðu flutti hann
hrífandi ræður um mikilvægi kær-
leikans og mannréttinda og þess
að þing og ríkisstjórn geri sér grein
fyrir því að peningar séu ekki allt
(sjá ívitnun hér að ofan). Nú er hann
heilbrigðismálaráðherra í ríkis-
stjórn peningastrákanna, Bjarna og
Benedikts, og hefur um það stór orð
hvað honum líði vel að vinna með
þeim. Það er eins og hann hafi ekki
hlýtt á eigin ræður hvað þá annað
samið og flutt, nema þær hafi verið
hugsaðar sem öfugmælavísur. Það er
Leikmunur
Opið bréf til kjósenda Bjartrar framtíðar
Hann talaði um fjárhags-
legan raunveruleika sem setti
okkur skorður. Okkar svör
við því voru að það hefði
aldrei verið meiri auður í
íslensku samfélagi og það
væri vilji fólksins í landinu
að skattleggja þennan auð að
því marki að við höfum efni
á mannsæmandi heilbrigðis-
kerfi. Það leist heilbrigðis-
málaráðherranum ekki á
vegna þess að það kynni
að valda óróa í hinu góða
stjórnarsamstarfi.
ekki nóg með að hann sætti sig við
félagsskapinn, hann er orðinn einn
af strákunum og það finnst honum
kúl.
Fyrir kosningar var íslensk þjóð
nokkuð einróma í þeirri skoðun
sinni að heilbrigðiskerfið væri í rusli
og það yrði að ráðast í myndarlega
endurreisn þess. Krafa til Alþingis
um að 11% af vergri landsframleiðslu
yrði varið til reksturs heilbrigðis-
kerfisins var undirrituð af 85.000
atkvæðisbærum Íslendingum. Allir
stjórnmálaflokkarnir hétu því að
þeir myndu ráðast í endurreisnina
eftir kosningar, að undanskildum
Sjálfstæðisflokknum sem sló í og úr
og hélt því stundum fram að það væri
að mestu búið að endurreisa kerfið.
Annað loforð sem allir flokkarnir
veittu var að stemma stigu við einka-
væðingu heilbrigðiskerfisins utan
Sjálfstæðisflokkurinn sem einnig
þar sló í og úr. Í stjórnarmyndunar-
viðræðunum segir formaður ykkar
að hann hafi beðið um heilbrigðis-
málaráðuneytið sem hann og fékk.
Nú skulum við skoða hvernig honum
gengur að efna loforð honum Óttari
Proppé og hversu vel hann lýtur vilja
fólksins í landinu. Það má vera að
ykkur kjósendum hans finnist full-
snemmt að meta það eftir aðeins
fjóra mánuði, en ekki gleyma því að
við höfum fimm ára áætlun ríkis-
fjármála sem yfirlýstan vilja hans og
samráðherra hans um það hvernig
þeir hyggjast taka á heilbrigðiskerf-
inu.
Loforð um endurreisn
heilbrigðiskerfisins
Krafan til Alþingis sem var undir-
rituð af 85 þúsund manns í fyrra var
upp á 11% af vergri landsframleiðslu
til reksturs heilbrigðiskerfisins sem
hefði aukið fé til þess um 40 millj-
arða króna á ári. Ríkisfjármálaáætl-
unin gerir ráð fyrir 45 milljörðum
af nýju fé inn í kerfið á fimm árum.
Þar af fara 36 milljarðar í nýbygg-
ingu Landspítalans sem hefur ekk-
ert með rekstur heilbrigðiskerfisins
að gera. Af þeim níu milljörðum
sem eftir standa er tveimur ætlað að
standa straum af kostnaði við læknis-
þjónustu Íslendinga erlendis sem er
furðuleg ráðstöfun á fé og verður
vikið að henni hér síðar. Þá eru eftir
sjö milljarðar króna af nýju fé á fimm
árum sem gera 1,4 milljarða á ári eða
rétt um þrjú prósent af kröfu fólksins
í landinu.
Þegar rýnt er vendilega ofan í
tölurnar í ríkisfjármálaáætluninni
og gert ráð fyrir fólksfjölgun og
breytingu í aldurssamsetningu er
ljóst að það er gert ráð fyrir því að
setja nákvæmlega ekkert nýtt fé í að
endurskipuleggja og bæta þjónustu
við landsmenn á næstu fimm árum.
Endurreisn heilbrigðiskerfisins er
ekki á dagskrá þessarar ríkisstjórnar.
Þegar við sátum á löngum fundi
með Óttari Proppé niður í Vatns-
mýrinni á föstudaginn 5. maí, ég og
tveir forsvarsmenn læknisfræði í
landinu, bentum við honum á þetta.
Hann yppti öxlum og viðurkenndi
að ríkisfjármálaáætlunin væri í litlu
samræmi við kröfur fólksins í land-
inu en hann væri samt ánægður með
hlut heilbrigðiskerfisins. Hann talaði
um fjárhagslegan raunveruleika sem
setti okkur skorður. Okkar svör við
því voru að það hefði aldrei verið
meiri auður í íslensku samfélagi og
það væri vilji fólksins í landinu að
skattleggja þennan auð að því marki
að við höfum efni á mannsæmandi
heilbrigðiskerfi. Það leist heilbrigðis-
málaráðherranum ekki á vegna þess
að það kynni að valda óróa í hinu
góða stjórnarsamstarfi. Honum er
sem sagt meira í mun að þóknast
Bjarna Benediktssyni og Benedikt
Jóhannessyni en fólkinu í landinu.
Þeir tveir virðast hins vegar stað-
ráðnir í því að hunsa þann grund-
vallarþátt lýðræðisins sem felst í því
að fara að vilja fólksins þegar hann er
skýr. Og hvers vegna skyldi það svo
vera er spurning sem beinir sjónum
að einkavæðingu heilbrigðiskerfis-
ins.
Loforð um að stemma
stigu við einkavæðingu
heilbrigðiskerfisins
Þegar við félagarnir þrír bentum heil-
brigðismálaráðherra á þá staðreynd
að stefna Sjúkratrygginga sem hefur
verið við lýði um árabil, að svelta
Landspítalann en gera ríkulega
samninga við félög heilbrigðisstétta,
hafi leitt til mikillar einkavæðingar
á heilbrigðisþjónustu sagðist hann
gera sér grein fyrir þessu en hefði
engin plön um að breyta stefnunni.
Þessi háttur Sjúkratrygginga hlýtur
að skoðast sem markviss tilraun til
einkavæðingar vegna þess að ekki
sparar hann fé. Með því að koma
í veg fyrir að Spítalinn sé í stakk
búinn til þess að sinna verkefnum er
hins vegar búin til knýjandi þörf fyrir
einkaframtakið.
Klíníkin í Ármúlanum er orðin
flaggskip einkavæðingarinnar en
þar eru framkvæmdar inngrips-
miklar aðgerðir á sjúklingum. Þörfin
fyrir þjónustu Klíníkurinnar er
alfarið háð fjársvelti Landspítalans.
Víkur nú sögunni að milljörðunum
tveimur í ríkisfjármálaáætluninni
sem eiga að fara í læknisþjónustu við
Íslendinga erlendis. Það fé fer líklega
í fyrstu til þess að borga fyrir aðgerðir
framkvæmdar á einkasjúkrahúsum í
Svíþjóð af þeirri gerð sem eru fram-
kvæmdar á Klíníkinni í Ármúlanum.
Síðan verður látið undan þrýstingi og
borgað fyrir aðgerðirnar á Klín íkinni.
Milljarðarnir tveir eru sem sagt fé sem
er eyrnamerkt til þess að fjármagna
einkavæðingu í íslenskri heilbrigðis-
þjónustu. Í stað þess mætti nota þetta
fé til þess að útbúa Landspítalann til
þess að sinna allri þeirri þörf sem er
fyrir þessar aðgerðir á landi hér. Þar
er öryggis sjúklinga mun betur gætt
en á fábrotinni einkaklíník í Ármúl-
anum og aðgerðirnar nýtast til þess
að mennta og þjálfa næstu kynslóð
heilbrigðisstarfsmanna.
Er ekki nokkuð ljóst á því sem hér
hefur verið rakið að það er dálítið
bil milli þess Óttars sem flutti í fyrra
ræðuna sem ég vitnaði í og hins sem
nú situr sem heilbrigðismálaráð-
herra? Ég er að velta fyrir mér þeim
möguleika að hann hafi í rauninni
aldrei meint það sem hann sagði í
ræðunum sínum. Hann vann lengi
sem afgreiðslumaður í bókabúð og
leit á sig sem mann bókmenntanna.
Kannski var ræðunum hans einfald-
lega ætlað að höfða til tilfinninga
og hrífa eins og prósaískt ljóð án
þess að að baki þeim væri loforð um
að standa við eitt einasta orð sem
hann sagði; án þess að hann meinti
eitt einasta orð sem annað en tæki
til þess að kitla tilfinningar. Hinn
möguleikinn er sá að hann meini
allt en skilji einfaldlega ekki það sem
er að gerast í kringum hann og láti
Bjarna og Benedikt, sem eru læsari
á tölur en hann, þyrla í kringum sig
bókhaldsskýi hnausþykku. Hvort
sem reynist rétt er hann ekki maður
orða sinna og kominn tími til þess að
þið sem kusuð hann losið okkur við
hann. Það er ekki bara nauðsynlegt
fyrir okkur og ykkur heldur líka fyrir
Óttar, vegna þess að hann er farinn
að líta út eins og leikmunur á sviðinu
þar sem Bjarni og Benedikt syngja
vesöld og sult í bú hins almenna
borgara.
Kári Stefánsson
forstjóri
Íslenskrar
erfðagreiningar
Þingmenn og ráðherrar eru kjörnir til að gæta hagsmuna almennings, en virðast ekki
alltaf vera vakandi fyrir þessu hlut-
verki sínu.
Mikil áform eru nú uppi um stór-
aukið fiskeldi við strendur Íslands.
Ástæðan er að slíkur rekstur er
mjög arðbær nú og framtíðarhorfur
góðar.
Fiskeldi byggist á notkun og nýt-
ingu sameiginlegra auðlinda okkar,
en þrátt fyrir það eru engin áform
um að greinin borgi fyrir þessa
notkun, greiði auðlindagjald.
Fiskeldi í sjókvíum mengar
umhverfi sitt. Úr kvíunum kemur
skítur og fóður sem mengar og
skemmir sjávarbotninn. Úr kví-
unum leka líka lyf sem fiskunum
eru gefin og veruleg hætta er á
að laxar sem sleppa úr kvíunum
mengi (og jafnvel útrými) villtum
laxastofnum við Ísland. Þá verður
mikil sjónmengun af kvíunum sem
verða settar upp í mörgum fegurstu
fjörðum landsins.
Það er því eðlileg krafa að þeir
sem ætla að fá leyfi til að hagnast
með þessum hætti á sameiginlegum
auðlindum okkar greiði fyrir þessi
not.
Þetta virðist hins vegar alveg hafa
gleymst. Kannski vegna dugnaðar
fyrirtækjanna við að koma ár sinni
fyrir borð. Alla vega hafa þingmenn
hér steinsofið á verðinum við að
gæta hagsmuna þeirra sem eiga
auðlindina sem til stendur að nýta
og menga.
Ríkisútvarpið skýrði nýlega frá
því að í Noregi væru sveitarfélög
í auknum mæli afhuga fiskeldi og
vildu ekki meira af slíku. Ástæðuna
segja sveitarfélögin vera þá að fisk-
eldið skili litlu til samfélagsins þrátt
fyrir mikinn gróða fiskeldisfyrir-
tækjanna. Sveitarfélögin fái litlar
beinar tekjur og sum þeirra mjög
litlar afleiddar tekjur.
Á Íslandi kostar rekstrar- og
starfsleyfi til fiskeldis eina milljón
króna. Í Noregi kostar slíkt leyfi
150 milljónir króna og þegar Norð-
menn prófuðu að bjóða upp slík
leyfi fyrir nokkrum árum fengust
840 milljónir fyrir dýrasta leyfið.
Væri ekki ráð að þingmenn vökn-
uðu af sínum þunga svefni og gerðu
hér bragarbót? Auðlindagjald af
fiskeldi gæti að hluta runnið til við-
komandi sveitarfélaga og að hluta
í auðlindasjóðinn sem á að tryggja
okkur fyrir áföllum í framtíðinni.
Ekki mun af veita.
Sofandi þingmenn
Björn B.
Björnsson
áhugamaður
um almanna
hagsmuni
Hvort sem reynist rétt er
hann ekki maður orða sinna
og kominn tími til þess að
þið sem kusuð hann losið
okkur við hann. Það er ekki
bara nauðsynlegt fyrir okkur
og ykkur heldur líka fyrir
Óttar, vegna þess að hann
er farinn að líta út eins og
leikmunur á sviðinu þar sem
Bjarni og Benedikt syngja
vesöld og sult í bú hins al-
menna borgara.
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R22 s k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð I ð
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
2
-2
5
B
8
1
C
E
2
-2
4
7
C
1
C
E
2
-2
3
4
0
1
C
E
2
-2
2
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K