Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 14
Ól a f u r b a ð um að fá að koma
fyrir nefndina og
mér fannst sjálf-
sagt að hlusta á
það sem hann hefði
fram að færa. En það var
ekkert nýtt, hvorki í því sem hann
sagði né gögnunum. Ég svo sem
bjóst ekki við neinu en mér fannst
líklegt að eitthvað kæmi fram úr því
hann lagði svona mikla áherslu á að
koma fyrir nefndina.
Það kom ekkert nýtt fram og það eru
mjög sérstakar
skoðanir hans
á eignarhaldi og
afneitun á þeim
gögnum sem Rann-
sóknarnefnd Alþingis virðist hafa
dregið réttmætar ályktanir af.
Þannig að þetta breytir engu um
niðurstöðu skýrslu rannsóknar-
nefndarinnar.
Ólafur laug nokkrum sinnum eða
að minnisleysið var mjög valkvætt.
Skýrustu svörin voru að viðurkenna
það að þessi þýski banki átti aldrei
aðild að þessu máli. Það voru ein-
hver félög honum tengd og það var
nú rakið þarna nokkurn veginn.
Það urðu óþarflega langar deilur
um þessar milljón evrur til Hauck
& Aufhäuser sem eru óskaplega ein-
föld þóknun.
Ég vil að stjórnskipunar- og eftir-
litsnefnd falist eftir því við Alþingi
að þingið staðfesti niðurstöðu þess-
arar nefndar. Svo hef ég efasemdir
um að sakir séu fyrndar í þessu máli.
Það er skattsvikamál í þessu í fyrsta
lagi og í öðru lagi þessi blekking
að blekkja stjórnvöld með þessum
hætti sem var gert.
CHAR-BROIL
TITAN GASGRILL
Grillflötur 670x485 mm
3 brennarar
189.000 KR.
CHAR-BROIL
GASGRILL
Grillflötur 420x440 mm
2 brennarar
69.900 KR.
CHAR-BROIL
GASGRILL
Grillflötur 670x470 mm
3 brennarar
109.900 KR.
CHAR-BROIL
BIG EASY
Steikarofn, reykofn
og grill
54.900 KR.
P
IP
A
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
71
89
1
CHAR-BROIL
GÆÐAGRILL
Öll Char-Broil grillin eru með TRU-infrared tækninni sem
kemur í veg fyrir eldtungur og tryggir jafnari steikingu.
100% JAFN HITIBETRI STJÓRN
Á HITA
0:00
STYTTRI
ELDUNARTÍMI
Í ALLRI
VEÐRÁTTU
MINNI
GASNOTKUN
ENGAR
ELDTUNGUR
SAFARÍKARI
MATUR
Segja það vera vonbrigði að
ekkert nýtt hafi kom fram
Nefndarmenn stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar bjuggust við nýjum upplýsingum í máli Ólafs Ólafssonar
um kaupin á Búnaðarbanka en sögðu þær vonir hafi brostið. Þingmaður VG lýsir fundinum sem enn einni
reyksprengju Ólafs. Það er samdóma álit nefndarmanna að fundurinn í gær breyti litlu.
Lilja
Alfreðsdóttir
Kjartan Bjarni
Björgvinsson
Jón Steindór
Valdimarsson
Jón Þór
Ólafsson
Ég hefði viljað s já m e i ra af nýjum
gögnum sem
hefðu þá stutt
f u l l y r ð i n g a r
Ólafs um að ekki
hafi verið um blekk-
ingu að ræða. Þau komu
ekki. Auk þess tel ég að það sé
nokkuð ljóst að erlent eignarhald
hafi hjálpað þeim kaupendum sem
gátu verið með slíkt. Þeir sem fóru
fyrir kaupunum voru mjög meðvit-
aðir um það. Þess vegna snöruðu
þeir þýska bankanum inn þegar sá
franski hætti við af því það var gef-
inn plús fyrir erlent fjármagn sem
jók líkur þeirra á að fá að kaupa
Búnaðarbankann. Það sem hann
nefnir að þetta hafi ekki verið
skilyrði fyrir því að þeir keyptu
skiptir ekki sköpum hér. Á þeim
tíma voru stjórnvöld búin að leita
að erlendu eignarhaldi, það vissu
þessir aðilar.
Ra n n s ó k n a r -n e f n d i n hefur skil-
að niðurstöðum
sínum. Þær eru
skýrar og byggðar
á umfangsmiklum
gögnum. Vinnu nefnd-
arinnar er lokið og málið er nú til
meðferðar hjá stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd,“ sagði Kjartan Bjarni
Björgvinsson, formaður Rann-
sóknar nefndar Alþingis. Í máli sínu
í gær sagði Ólafur Ólafsson meðal
annars að hvatirnar að baki skýrsl-
unni væru annarlegar og málsmeð-
ferðin óásættanleg.
Fundurinn var s v o s e m ágætur og
Ólafur fór yfir sín
mál. Síðan gafst
okkur tækifæri
til að spyrja. Ég átti
nú von á því að það yrðu
lögð fram gögn sem vörpuðu nýju
ljósi á málið. Það sýndist mér ekki.
Auðvitað hefur Ólafur sínar skoð-
anir á ýmsum þáttum þess en þær
skoðanir verður að styðja gögnum
og mér fannst hann ekki gera það
vel. En engu að síður förum við yfir
þetta og ræðum og metum hvort
þarna hafi eitthvað komið fram
sem gæti skipt máli. En mér fannst
þessi fundur ekki breyta miklu um
niðurstöðu rannsóknarskýrslunnar
og málið í heild sinni. Varðandi
næstu skref munum við funda á
morgun og erum með verkplan um
það hvernig við munum vinna þetta
mál áfram.
Þetta var stór-s k e m m t i -legur fund-
ur og upplýsandi.
Ekki um það sem
fundurinn var um,
heldur út af því að
Ólafur kallar eftir því að
koma fyrir nefndina, meðal annars
til að tala um stjórnmálaástandið,
en gerir það svo nánast ekki neitt.
Hann var greinilega vel undir-
búinn og kemur að þessum punkti
að það hafi ekki verið skilyrði fyrir
sölunni að hafa erlendan fjárfesti.
Þannig kom hann því strax inn í
umræðuna.
Allt þetta ferli sem við erum í
núna, að fara yfir þessa rannsóknar-
skýrslu um sölu Búnaðarbankans,
er liður í því að ákveða hvernig við
ætlum að halda áfram með heildar-
rannsókn á allri einkavæðingunni.
Ólafur Ólafsson sagðist vilja gera
hreint fyrir sínum dyrum og auka
traust á ný í íslensku samfélagi.
„Ég hefði getað sloppið við
þessi svipugöng hér í dag,“
sagði Ólafur og bætti síðar við:
„Ég sit með kaleikinn og
alla öskupokana bundna
á bakið. Ég reyni að horfa
fram á veginn og tel að það
sem er að gerast í dag sé
meira mikilvægt en það
sem gerðist í gær og það
sem gerist á morgun sé
enn mikilvægara.“
Jón Steindór Valdimarsson,
varaformaður stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar Alþingis, gaf lítið
fyrir þau gögn sem Ólafur sendi
nefndinni.
„Mig langar að segja að
mér sýnist að í þessum
gagnabunka séu sex skjöl
sem eru ný.“
Lilja Alfreðsdóttir, þingmaður
Framsóknarflokks, sagði allt í
málinu benda til þess að þýski
bankinn hefði í raun verið leppur.
„Vekur þetta engar grun-
semdir hjá þér sjálfum um
að blekkingum hafi verið
beitt? Finnst þér þetta
sjálfum ekkert grunsam-
legt?“
Hildur Sverrisdóttir sagði það ekki
rétt hjá Ólafi að ríkið hefði ekki
tapað á Lundafléttunni.
„Burtséð frá krónunum þá
held ég að íslenska ríkið
hafi tapað, því við sitjum
hérna eftir öll þess ár um-
lukin vantrausti.“
Að fundi loknum gekk Ólafur að
Vilhjálmi Bjarnasyni, sem hafði
gengið hart fram á fundinum og
þjarmað að Ólafi, og tók í höndina
á honum.
„Þér hefur verið illa við
mig svo lengi að mér
fannst ég þurfa að heilsa
þér.“
Vilhjálmur
Bjarnason
þingmaður Sjálfstæðisfl.
Nichole Leigh
Mosty
Þa n n i g s é ð kom ekkert nýtt fram
á f u n d i n u m
sem ekki var í
skýrslunni. En ef
ég á að vera hrein-
skilin þá fannst mér gott
að hann skyldi koma fyrir nefnd-
ina og vilja tala við okkur og svara
spurningum. Það hefði alveg mátt
vera skýrara. Ég vona að við förum
vel í gegnum gögnin og rýnum betur
í svörin hans til að draga einhvern
lærdóm af þessu. Ég hafði væntingar
um að við myndum heyra meira frá
honum. Við erum að sigla aftur inn
í góðærið og viðskipti eru blússandi
svo mér finnst við verða að draga
einhverjar ályktanir af því sem gerð-
ist svo við getum verið vakandi fyrir
því að þetta gerist ekki aftur.
þingmaður Bjartrar framtíðar
Oddný
Harðardóttir
þingmaður Samfylkingar
Svandís
Svavarsdóttir
Mér fannst þ e t t a f y r s t
og fremst ein af
reyksprengjum
Ólafs Ólafssonar.
Það var ekkert nýtt í
þessu á nokkurn hátt. Þá
þarf ekki að eyða meiri tíma í það
og við getum haldið áfram okkar
vinnu á grundvelli rannsóknar-
skýrslunnar. Það lá algjörlega fyrir
að hann taldi sig á einhvern hátt
vera hafinn yfir samfélagið þegar
hann neitaði að koma á fund
Rannsóknarnefndar Alþingis. En
varðandi efnisatriði málsins voru
þetta allt kunnugleg svör. Hann
lætur eins og þetta sé allt einn stór
misskilningur og allt sem hann hafi
gert hafi verið satt og rétt.
þingmaður Vinstri grænna þingmaður Framsóknarfl.
formaður Rannsóknar-
nefndar Alþingis
þingmaður Viðreisnar
þingmaður Pírata
1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R14 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
E
2
-3
E
6
8
1
C
E
2
-3
D
2
C
1
C
E
2
-3
B
F
0
1
C
E
2
-3
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K