Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 60
KviKmyndir King Arthur: Legend of the Sword HHHHH Leikstjóri: Guy Ritchie Framleiðendur: Guy Ritchie, Akiva Goldsman, Joby Harold Handrit: Joby Harold, Guy Ritchie, Lionel Wigram Aðalhlutverk: Charlie Hunnam, Jude Law, Djimon Hounsou Breski leikstjórinn Guy Ritchie hefur gert það að góðum vana að flytja eitthvað hundgamalt yfir í nýjan, nútímalegri búning og brennimerkja það með sínum eigin stíl. Þetta á við um krimmamyndir hans sem sækja í heimaslóðirnar sem og poppaðra, hasardrifnara efnið frá Hollywood, hvort sem það er Sherlock Holmes, hin stórlega vanmetna The Man from U.N.C.L.E. eða King Arthur. Það er erfitt að halda tölu á því hversu margar myndir hafa verið gerðar um Artúr konung, riddara Camelots eða galdrana þar í kring, alvarlegar sem yfirdrifnar, en þar bætist núna Ritchie í hópinn og matreiðir goðsagnirnar með sínum brögðum, bæði til hins betra og verra. Í raun er ekki mikið svigrúm í boði hér til að koma áhorfendum á óvart. King Arthur: Legend of the Sword flytur goðsögnina alveg að byrjunarreitnum; áður en aðal- maðurinn varð konungur og gengur þessi útgáfa út á tog- streitu hans við fortíð sína og tökin sem hann hefur á töfra- sverði sínu. Úr verður bæði upprisu- og hefndarsaga í einni, löðrandi í fantasíu sem leikur sér að göldrum, risavöxnum dýrum, skúrkum og senum sem eru eins og beint teknar úr tölvuleik. Dark S o u l s k e m u r meðal annars upp í hugann. Ritchie hefur sagt að nálgun sín á King Arth- ur væri eins konar blanda af Hringadróttins- sögu og Snatch og þetta leynir sér ekki. Myndin e r m e t n a ð a r f u l l , vel slípuð á marga vegu og nokkuð skemmtileg, svo lengi sem áhorf- andinn lætur það ekki trufla sig að hún gengur í gegn- um allar helstu klisjurnar sem snúa að upphafs- sögum. Flest það sem hefur einkennt fyrri myndir leik- stjórans finnst hér í ágætu magni; flott músík þar á meðal, háhraða t ö k u r , h r e s s klipping, kóm- ískir stælar og vissulega stæltir og slagsmálaóðir töffarar. Það er ekki vitlaust að segja að flestar myndir leik- s t j ó r a n s búi yfir v i s s r i karlafýlu en þessar betri frá honum hafa yfirleitt verið hlaðn- a r o r k u , s k r a u t - legum kar- a k t e r u m og fínum slettum af léttgeggj- u ð u m húmor. King Arthur er þunn og svolítið tætt mynd, stund- umhryllilega illa skrifuð. Hún geng- ur annars vegar upp með skreyt- ingum leikstjórans, enda hefur hann gott auga fyrir því að stilla upp römmum með ferskum hætti. Klippingin gefur henni líka svakaleg- an púls, yfirleitt með aðstoð frá stefjum eftir Daniel Pemberton. Sviðsmyndir, brellur og búningar eru í topp- flokki, sem er enn eitt merkið um að fram- leiðsluaurinn sést allur á skjánum. Leikhópurinn lyftir heildarpakkanum líka aðeins, þótt varla sé hægt að segja að hverri frammistöðu fylgi ein- hver dýpt. Ekkert kippir þó áhorfandanum hraðar úr myndinni en ákvörðunin um að setja David Beckham í gestahlutverk og gefa honum nokkrar línur. Í aðalhlutverkinu kemur hinn hestmassaði Charlie Hunnam hreint þokkalega út, varla angandi af miklum persónutöfrum en þó með stóísku hetjutaktana á hreinu og mýkri hlið. Jude Law ber sig annars eins og hann skemmti sér konunglega við að leika valdasjúkt illmenni sem daðrar við galdra og verður sífellt ómannúðlegri og kaldari með hverri senu. Hinir þaulreyndu Djimon Hounsou, Eric Bana, Aidan Gillen og fleiri fylla líka ágætlega upp í grynnri hlutverk. Hitt kynið fær aftur á móti lítið til að vinna með. Annabelle Wallis er t.d. í stóru hlut- verki en virðist ekkert rými fá og eina, svala seiðkonan í myndinni, leikin af Astrid Bergès-Frisbey, er ekki einu sinni nafngreind. Að vissu leyti er erfitt að finna dæmigerðari stórmynd, sem best má njóta með heilann sofandi, en hins vegar er myndin nógu hröð, fjörug og einföld afþreying til þess að hægt sé að horfa fram hjá göllum hennar, eins ófáir og þeir eru. Sem ákveðinn plús má einnig segja að þessi nýja mynd um King Arthur sé ekki eins misheppnuð og sú frá 2004 þar sem Clive Owen fór með titilhlutverkið, en seint verður komist með tærnar þar sem perlan Ex calibur frá ‘81 hefur hælana. Tómar Valgeirsson niðurStAðA: Bætt er upp fyrir þunnildin með fínum hraða, flottum pakkningum og prýðilegu afþrey- ingargildi. En gætið þess bara að stilla væntingunum í hóf. Sverð, seiðkarlar og konungleg vitleysa David Beckham fer með hlutverk í myndinni. NORDICPHOTOS/GETTY AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ EIGENDUR VW • Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen. • Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina má flest allt um ástand bílsins og gæði. Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu. Komið, sjáið og sannfærist. Kletthálsi 9 • Sími 568 1090 - V E R K S T Æ Ð I Ð - Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is Útsölustaðir: Hörpu / Laugavegi R e y k j av i k R a i n c o at s - H V e r f i s g ö t u 8 2 w w w. r e y k j av i k r a i n c o at s . c o m - s í m i : 5 7 1 1 1 7 7 • Nýtt útlit, öfl ugri og hljóðlátari • Stiglaus hraðastýring ásamt pulse rofa og 5 prógrömmum • Uppskriftabók fylgir Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is Pro750 galdurinn á bak við ferskt hráefni - Vanræktu ekki viðhaldið - Allt til kerrusmíða 1 8 . m A í 2 0 1 7 F i m m t u d A G u r48 m e n n i n G ∙ F r É t t A B L A ð i ð Bíó 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C E 2 -4 3 5 8 1 C E 2 -4 2 1 C 1 C E 2 -4 0 E 0 1 C E 2 -3 F A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.