Fréttablaðið - 18.05.2017, Qupperneq 60
KviKmyndir
King Arthur: Legend of the
Sword
HHHHH
Leikstjóri: Guy Ritchie
Framleiðendur: Guy Ritchie, Akiva
Goldsman, Joby Harold
Handrit: Joby Harold, Guy Ritchie,
Lionel Wigram
Aðalhlutverk: Charlie Hunnam,
Jude Law, Djimon Hounsou
Breski leikstjórinn Guy Ritchie
hefur gert það að góðum vana að
flytja eitthvað hundgamalt yfir
í nýjan, nútímalegri búning og
brennimerkja það með sínum eigin
stíl. Þetta á við um krimmamyndir
hans sem sækja í heimaslóðirnar
sem og poppaðra, hasardrifnara
efnið frá Hollywood, hvort sem það
er Sherlock Holmes, hin stórlega
vanmetna The Man from U.N.C.L.E.
eða King Arthur.
Það er erfitt að halda tölu á því
hversu margar myndir hafa verið
gerðar um Artúr konung, riddara
Camelots eða galdrana þar í kring,
alvarlegar sem yfirdrifnar, en þar
bætist núna Ritchie í hópinn og
matreiðir goðsagnirnar með sínum
brögðum, bæði til hins betra og
verra.
Í raun er ekki mikið svigrúm í
boði hér til að koma áhorfendum
á óvart. King Arthur: Legend of the
Sword flytur goðsögnina alveg að
byrjunarreitnum; áður en aðal-
maðurinn varð konungur og
gengur þessi útgáfa út á tog-
streitu hans við fortíð sína og
tökin sem hann hefur á töfra-
sverði sínu. Úr verður bæði
upprisu- og hefndarsaga í einni,
löðrandi í fantasíu sem leikur
sér að göldrum, risavöxnum
dýrum, skúrkum og
senum sem eru eins
og beint teknar úr
tölvuleik. Dark
S o u l s k e m u r
meðal annars
upp í hugann.
Ritchie hefur
sagt að nálgun
sín á King Arth-
ur væri eins
konar blanda af
Hringadróttins-
sögu og Snatch
og þetta leynir
sér ekki. Myndin
e r m e t n a ð a r f u l l ,
vel slípuð á marga
vegu og nokkuð
skemmtileg, svo
lengi sem áhorf-
andinn lætur það
ekki trufla sig að
hún gengur í gegn-
um allar helstu
klisjurnar sem
snúa að upphafs-
sögum.
Flest það sem
hefur einkennt
fyrri myndir leik-
stjórans finnst hér
í ágætu magni;
flott músík þar á
meðal, háhraða
t ö k u r , h r e s s
klipping, kóm-
ískir stælar og
vissulega stæltir
og slagsmálaóðir
töffarar. Það er
ekki vitlaust að
segja að flestar
myndir leik-
s t j ó r a n s
búi yfir
v i s s r i
karlafýlu en
þessar betri
frá honum
hafa yfirleitt
verið hlaðn-
a r o r k u ,
s k r a u t -
legum kar-
a k t e r u m
og fínum
slettum af
léttgeggj-
u ð u m
húmor.
King Arthur er
þunn og svolítið
tætt mynd, stund-
umhryllilega illa
skrifuð. Hún geng-
ur annars vegar
upp með skreyt-
ingum leikstjórans,
enda hefur hann
gott auga fyrir því að
stilla upp römmum
með ferskum hætti.
Klippingin gefur
henni líka svakaleg-
an púls, yfirleitt með
aðstoð frá stefjum eftir
Daniel Pemberton.
Sviðsmyndir, brellur
og búningar eru í topp-
flokki, sem er enn eitt
merkið um að fram-
leiðsluaurinn sést allur á
skjánum. Leikhópurinn
lyftir heildarpakkanum
líka aðeins, þótt varla sé
hægt að segja að hverri
frammistöðu fylgi ein-
hver dýpt. Ekkert kippir þó
áhorfandanum hraðar úr myndinni
en ákvörðunin um að setja David
Beckham í gestahlutverk og gefa
honum nokkrar línur.
Í aðalhlutverkinu kemur hinn
hestmassaði Charlie Hunnam
hreint þokkalega út, varla angandi
af miklum persónutöfrum en þó
með stóísku hetjutaktana á hreinu
og mýkri hlið. Jude Law ber sig
annars eins og hann skemmti sér
konunglega við að leika valdasjúkt
illmenni sem daðrar við galdra
og verður sífellt ómannúðlegri og
kaldari með hverri senu.
Hinir þaulreyndu Djimon
Hounsou, Eric Bana, Aidan Gillen
og fleiri fylla líka ágætlega upp í
grynnri hlutverk. Hitt kynið fær
aftur á móti lítið til að vinna með.
Annabelle Wallis er t.d. í stóru hlut-
verki en virðist ekkert rými fá og
eina, svala seiðkonan í myndinni,
leikin af Astrid Bergès-Frisbey, er
ekki einu sinni nafngreind.
Að vissu leyti er erfitt að finna
dæmigerðari stórmynd, sem best
má njóta með heilann sofandi, en
hins vegar er myndin nógu hröð,
fjörug og einföld afþreying til þess
að hægt sé að horfa fram hjá göllum
hennar, eins ófáir og þeir eru. Sem
ákveðinn plús má einnig segja að
þessi nýja mynd um King Arthur
sé ekki eins misheppnuð og sú frá
2004 þar sem Clive Owen fór með
titilhlutverkið, en seint verður
komist með tærnar þar sem perlan
Ex calibur frá ‘81 hefur hælana.
Tómar Valgeirsson
niðurStAðA: Bætt er upp fyrir
þunnildin með fínum hraða, flottum
pakkningum og prýðilegu afþrey-
ingargildi. En gætið þess bara að
stilla væntingunum í hóf.
Sverð, seiðkarlar og
konungleg vitleysa
David Beckham fer með
hlutverk í myndinni.
NORDICPHOTOS/GETTY
AUKIN ÞJÓNUSTA
VIÐ EIGENDUR VW
• Bílson er sérhæft og vottað þjónustuverkstæði
sem uppfyllir allar ströngustu kröfur Volkswagen.
• Fullkomin forgreiningarstöð þar sem greina
má flest allt um ástand bílsins og gæði.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Útsölustaðir:
Hörpu / Laugavegi
R e y k j av i k R a i n c o at s - H V e r f i s g ö t u 8 2
w w w. r e y k j av i k r a i n c o at s . c o m - s í m i : 5 7 1 1 1 7 7
• Nýtt útlit, öfl ugri og hljóðlátari
• Stiglaus hraðastýring ásamt
pulse rofa og 5 prógrömmum
• Uppskriftabók fylgir
Rauðagerði 25 108 Rvk Sími 440-1800 www.kaelitaekni.is
Pro750 galdurinn á
bak við ferskt hráefni
- Vanræktu ekki viðhaldið -
Allt til kerrusmíða
1 8 . m A í 2 0 1 7 F i m m t u d A G u r48 m e n n i n G ∙ F r É t t A B L A ð i ð
Bíó
1
8
-0
5
-2
0
1
7
0
5
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
2
-4
3
5
8
1
C
E
2
-4
2
1
C
1
C
E
2
-4
0
E
0
1
C
E
2
-3
F
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K