Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 18.05.2017, Blaðsíða 58
SKEGGSJAMPÓ og skeggjaolía Nýtt í Nettó Ein af síðustu frumsýn-ingum leikársins verður í Tjarnarbíói annað kvöld þegar leikhópur-inn Lakehouse frum-sýnir Í samhengi við stjörnurnar eftir breska leikskáldið Nick Payne. Árni Kristjánsson, leik- stjóri sýningarinnar og annar stofn- enda leikhópsins, kynntist verkinu þegar hann var við nám í Englandi en nýverið lauk hann mastersprófi í leikstjórn frá hinum virta skóla Bristol Old Vic Theater School. Nýta samböndin „Þetta var skemmtilegur tími. Það eru bara fjórir sem komast inn í þetta nám á ári og ég var sá eini sem átti ekki enskuna að móður- máli. Þetta er eins og hálfs árs nám og allan tímann er það mjög vinnu- tengt, þannig að maður fær fullt af tækifærum til þess að vinna í Bristol Old Vic leikhúsinu sem er ótengt skólanum. Svo leikstýrði ég á Shake- speare hátíð í Globe ásamt því að vinna mitt lokaverkefni.“ Grunnur Árna var í námi við Listaháskóla Íslands í námi sem kallast Fræði og framkvæmd og hann segir að sú sérstaka blanda sem er innan þess náms hafi nýst honum vel. „Áður en ég fór út var ég svo að kenna, leik- stýra og skrifa þannig að þetta er orðið nokkur fjölbreytt,“ segir Árni léttur. Árni segir að eftir að hann og unnusta hans, Harpa Fönn Sigur- jónsdóttir, hafi snúið heim frá Eng- landi hafi þau ákveðið að ráðast í að stofna leikhóp. „Við stofnuðum saman leikhópinn Lakehouse og Harpa Fönn sér um að framleiða þessa sýningu og semur einnig tón- listina en hún hefur áður verið með tónlist fyrir m.a. Vinnsluna enda er henni ófátt til lista lagt. Markmiðið með leikhópnum er að vinna með ný leikrit, bæði hérlendis og von- andi erlendis, og nýta svona þau sambönd sem ég myndaði í mínu námi í Englandi því í þeim eru ótví- rætt ákveðin verðmæti sem er um að gera að nýta.“ Lífið og eðlisfræði Árni segir að þau hafi valið verkið Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne vegna þess að þau hafi séð það sem góðan upphafspunkt. „Þetta er verk sem vakti mjög mikla athygli þegar það kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2012. Það var síðan sett upp á Broadway með Jake Gyllenhall og Ruth Wilson árið 2014 og hefur að auki ferðast vítt og breitt um heiminn. Verkið virðist alltaf vekja mikla athygli, bæði er það mikil þraut fyrir leikara og svo er þetta ein- staklega frumlega skrifað verk þó svo sagan sem um ræðir sé eitthvað sem allir tengja við. Þetta er saga um tvær manneskjur sem kynn- ast og verða hrifnar hvor af ann- arri sem er óneitan lega ekki ýkja frumlegt en verkið er byggt á lög- málum skammtafræði og afstæðis- kenningarinnar. Í mörgum litlum bútum fáum við að sjá hvernig verkið þróast út frá ákvörðunum persónanna tveggja. Þannig að það er svona leikur að þessu: Hvað ef? Hvað ef ég hefði gert þetta en ekki eitthvað annað? Og við fáum að sjá allar ákvarðanir þeirra lifa samtímis í mismunandi strengjum.“ Byggt á skammtafræði og afstæðiskenningu Í samhengi við stjörnurnar eftir Nick Payne hefur farið sigurför um heiminn og ratar nú á fjalir Tjarnar- bíós á vegum nýs leikhóps. Leikstjórinn Árni Kristjánsson segir verkið ófyrirsjáanlegt og heillandi. Árni Kristjánsson leikstjóri er nýkominn heim úr framhaldsnámi á Englandi en á morgun frumsýnir leikhópurinn hans í Tjarnarbíói. FréTTabLaðið/aNToN briNK birgitta birgisdóttir og Hilmir Jensson í hlutverkum sínum á sviðinu í Tjarnarbíói. MyNd/JuLiE rowLaNd Þrátt fyrir þessa eðlisfræðilegu byggingu verksins segir Árni að þeir sem hafi átt það til að sofa í gegnum eðlisfræðitímana í menntaskóla þurfi ekkert að óttast. „Nei, maður þarf ekki að vera með gráðu í eðlis- fræði til þess að skilja verkið. Alls ekki. Þetta er lífið. Líf okkar er soldið svona og þetta verk er leið til þess að komast nær því að skilja hvað lífið er ófyrirsjáanlegt. Það eru svo margar ákvarðanir sem við tökum sem gjörbreyta lífi okkar og reyndar líka ákvarðanir sem við tökum ekki sjálf. Höfum ekkert um að segja. Það er eitthvað sem allir tengja við.“ Leikarar og barn Það eru þau Birgitta Birgisdóttir og Hilmir Jensson sem fara með hlut- verk parsins í leikritinu en Árni segir að verkið feli í sér mikla áskorun fyrir leikara og því hafi þau farið þá leið að vera með leikaraprufur. „Þau stóðu sig bæði alveg æðislega í prufunum. Birgitta hefur verið fast- ráðin í Þjóðleikhúsinu síðasta árið og Hilmir hefur líka verið að gera ákaflega góða hluti, m.a. hér á leik- listarjaðrinum. Birgitta og Hilmir hafa aldrei leikið saman áður en það hefur verið mjög gaman að blanda saman þeirra kröftum af því að þau eru bæði svo skapandi og frumleg en líka mjög agaðir og tæknilega færir leikarar. Að auki þá njótum við líka krafta Þórunnar Maríu Jónsdóttur sem hannar leikmynd og búninga af list- fengi, Hafliði Emil Barðason sér um ljós og tæknimál og mér til aðstoðar við leikstjórnina er Ólafur Ásgeirs- son þannig að þetta er einvalalið.“ Í samhengi við stjörnurnar verður frumsýnt á föstudagskvöldið en það er ekki eini draumurinn sem þau Árni og Harpa Fönn hafa gengið með í maganum því með haustinu eiga þau von á sínu fyrsta barni. „Já mikið rétt. Það er barn á leiðinni þannig að það er margt í gangi. Núna er allt að verða klárt fyrir frumsýninu og svo njótum við þess líka að leikararnir eiga börn og hafa verið að gefa okkur ýmis góð ráð svona í ferlinu enda fyrirmyndar- fólk í alla staði.“ Það eru svo margar ÁKvarðaNir sem við TöKum sem gjörbreyTa LÍfi oKKar og reyNdar LÍKa ÁKvarðaNir sem við TöKum eKKi sjÁLf. Höfum eKKerT um að segja. Það er eiTTHvað sem aLLir TeNgja við. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 8 . m a í 2 0 1 7 F I m m T U D a G U R46 m e n n I n G ∙ F R É T T a B L a ð I ð 1 8 -0 5 -2 0 1 7 0 5 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C E 2 -2 F 9 8 1 C E 2 -2 E 5 C 1 C E 2 -2 D 2 0 1 C E 2 -2 B E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.