Fréttablaðið - 20.05.2017, Page 29

Fréttablaðið - 20.05.2017, Page 29
Svavar förum út að borða. Ég borða í raun allan íslenskan mat. Það er kannski helst skata sem ég er ekki sérstaklega hrifinn af.“ „Hann borðar þorramat og allt,“ segir Svavar og rifjar upp sögu af þorrablóti. „Það stóð kona fyrir aftan hann í biðröðinni að hlaðborðinu. Hún hallaði sér að honum og hvíslaði: Veistu hvað þetta er, vinur?“ Mætir fordómum með brosi Natthawat segir íslenskt samfélag hafa breyst. Taílendingum sé tekið opnum örmum. Hann verður æ sjaldnar fyrir fordómum vegna upp­ runa síns en þegar það hendir segist hann taka því með brosi á vör. „Fyrst þá nísti það að hjartarótum. Núna mæti ég fordómum með brosi og tek þá ekki nærri mér. Ég vann einu sinni  á Hrafnistu við að gefa öldruðum að borða. Þá neituðu sumir þeirra að taka við matnum frá mér og sögðu: Nei, við borðum ekki mat frá svörtum manni. Ég hef líka orðið fyrir aðkasti niðri í bæ. Mér sagt að fara af því ég er með dökkan hörundslit. Ég er ekki einu sinni með sérlega dökkan húðlit,“ segir Natth­ awat og skoðar á sér hendurnar. „En það er svolítið síðan, Taílendingum er tekið vel á Íslandi í dag  og þeir hafa aðlagast vel hér. Við finnum bara fyrir vináttu og virðingu fólks í dag.“ Veglegur kaupauki með nýjum kæli- og frystiskápum. Öllum nýjum Bosch og Siemens kæli- og frystiskápum fylgir gjafabréf í Kjötkompaní að verðmæti 30.000 kr. Komdu og gríptu tækifærið. Við tökum vel á móti þér. Gildistími er frá 17. maí til 22. maí. Opið virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 14. Í öllum Siemens og Bosch kæliskápum er skúffa sem tryggir lengur ferskleika grænmetis og ávaxta. Í sumum skápunum er svokölluð kjötskúffa þar sem finna má kaldasta svæðið í skápnum. Hentar fyrir ferskt kjöt, ferskan fisk, drykki og eldaða rétti. Nam tok, réttur með svínakjöti sem er ekki að finna á matseðl- inum. Fólk má hins vegar vel biðja um hann. Fréttablaðið/GVa „Það var nú bara að ég og konan þáver­ andi ætluðum að hætta vaktavinnu. Vaktavinnan var erfið. Lögreglustarfið hefur alltaf verið erfitt, en ég vildi ekki vera lögreglumaður í dag.“ Ban Kúnn þýðir „heima hjá þér“ á taílensku. „Við viljum að fólkinu líði eins og heima hjá sér. Viljum hafa fallegt og snyrtilegt í kringum okkur og viljum að fólk finni að það sé vel­ komið. Og það vilji koma aftur,“ segir Svavar. „Svo erum við alltaf hér. Það eru fá skipti þar sem hefur verið eldað heima síðan við opnuðum staðinn, þannig að þetta er viðeigandi heiti á staðnum,“ segir hann. Það eru nú ekki allir sem þola að vinna svona saman? „Það hvessir nú stundum. Við erum báðir með mikið skap,“ segir Svavar og  Natthawat kinkar kolli.  „En við erum nokkuð sammála um það sem við erum að gera hér. Það hefur gengið vel.“ Upphafið á sautjánda júní Veitingastaðurinn varð í raun til í kringum hátíðarhöld á sautjánda júní í Hafnarfirði. „Fyrir átta árum ákvað Natthawat að taka þátt í Austurgötu­ hátíðinni á sautjánda júní og elda taílenskan mat heima og selja,“ segir Svavar. „Hann sagði mér að ef matur­ inn myndi ekki seljast þá þyrfti ég að borða hann.“ Svavar fékk enga afganga. Natth­ awat seldi allt sem hann hafði eldað á klukkutíma og Svavar var sendur í margar ferðir til að kaupa meira kjöt og núðlur. „Svona byrjaði þetta, þetta hratt okkur af stað,“ segir Svavar sem á þessum tíma var atvinnulaus og leitaði sér að einhverju áhugaverðu að gera. „Við færum  veitingastaðinn heim til okkar í Austurgötuna á sautj­ ánda júní og í ár tökum við þátt í átt­ unda sinn.“ „Fyrsta árið var ég með tíu kíló af mat sem seldist upp á klukkustund. Á næsta ári byrjaði ég með tuttugu kíló en samt seldist allt upp aftur. Það var grenjandi rigning en fólk stóð í röðum og beið eftir matnum. Svavar þurfti að fara í alveg jafn margar ferðir í búðina,“ segir Natthawat og hlær. „Fólk sagðist hafa beðið í heilt ár eftir því að fá aftur góðar núðlur. Við kláruðum allt kjötið og sérkryddið í búðinni,“segir Svavar. „Á síðasta ári var ég með 70 kíló af svínakjöti og 100 kíló af kjúklingi, það seldist allt upp,“ segir Natthawan. „Þetta er dásamlegur dagur, við hlökkum alltaf jafnmikið til, það er ekkert stoppað!“ segir Svavar. blómasúpa fyrir veikan mann Munirnir inni á staðnum eru nærri allir frá Taílandi og afar ræktarlegar plöntur sem Natthawat á heiðurinn af að dekstra við. Stór bananaplanta er til prýði í einu horninu. „Natth­ awat er með græna fingur. Hann ræktar kryddjurtir heima sem við notum hér, basiliku, steinselju, kórí­ ander og myntu og fleira. Allt sem hann leggur sig við, það blómstrar,“ segir Svavar. „Ég trúi því að matur sé mikil­ vægur, hann getur læknað okkur,“ segir Natthawat. „Ég nota bara ferskt grænmeti og kryddjurtir, ég myndi aldrei nota frosið hráefni. Ég þoli ekki slíkt. Í Taílandi vitum við að hver jurt hefur sinn mátt og tilgang. Kóríander er gott fyrir hjartað til dæmis,“ segir hann og segist stundum benda fólki sem er að glíma við heilsufarsvanda­ mál á hvað það geti borðað til að bæta líðan sína. „Einu sinni þegar ég var mjög mikið veikur þá eldaði hann handa mér sérstaka blómasúpu,“ segir Svavar og brosir til Natthawats. „Ég elda fyrir aðra það sem ég myndi elda fyrir sjálfan mig. Það er svona ákveðinn kærleikur í þessu,“ segir Natthawat sem hefur reitt fram fyrir blaðamann og ljósmyndara tvo rétti. Annars vegar pad thai sem er vinsælasti rétturinn á matseðlinum og nam tok sem er ekki á matseðlin­ um. „Fólk kemur hingað og vill fá ekta taílenskan mat, rétti sem það smakk­ aði ef til vill á ferðalagi um Taíland, við verðum við því,“ segir Svavar. Hvað finnst þér um íslenskan mat, Natthawat? „Mér finnst voðalega gott að fá mér saltkjöt. Ég borða líka mikið af lambakjöti, sérstaklega þegar við h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 29l A U g A R D A g U R 2 0 . m A í 2 0 1 7 2 0 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 1 2 0 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 9 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C E 5 -6 D 1 8 1 C E 5 -6 B D C 1 C E 5 -6 A A 0 1 C E 5 -6 9 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 0 s _ 1 9 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.