Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 13
UM BKAl’ÐAVEITINGAli. 5
ing-ar á því prestakalli, er hann síðast sókti um, er það nú hefir
verið laust í tvö ár og1 enginn sókt um það.
Útaí' þessu kunngjörist yður til leiðbeiningar og- frekari aug-
lýsingar, að stjórnarráðinu virðist ekki vera ástæða til að gefa
gaum að þessari umkvörtun og fyrirspurn.
8. Bréf kirkju- og kennslustjórnarinnar til stiptsyfir-
valdanna á íslandi, um styrk tii að íslenzka og
prenta tiltekna guöfræðisbók.
í brefi, dagsettu 5. oktbrm. l'. á., hafið þér, herra stiptamt-
maður, og þér, háæruverðugi herra, sent iúngað, ásaint tveimur
álitsskjölum frá skólameistara við hinn lærða skóla í Reykjavík,
Jens Sigurðssyni, bænarski-á frá prestaskólakandidat Eiríki Briern
í Reykjavík, um styrk til aö snúa á íslenzku bók eptir Dr. F. G.
Lisco, sem heitir jlcn kristelig-apostoliske Troesbeltjendelsé”,
og nú er höfð við kennslu í guðfræði í liinuin lærða skóla, og að
þessi styrkur veröi látinn vera 12 rd. fyrir hverja örk; er ætlað,
að útleggingin verði hérumbil 20 eða 22 arkir að stærð, og
yrði bókin síðan höfð sem kennslubók við skólann.
Útaf þessu er yöur hérmeð til vitundar gefið, yður til leið-
beiningar og svo þér kunngjörið það, að stjórnarráðiö er ekki frá-
snúið því, eptir því sem ástatt er, að veita beiðandanum styrk
þann, er hann hefir sókt um, til að snúa nefndri kennslubók á ís-
lenzku, og skal yður því falið á liendur að vísa til styrks þessa af
því fé, sem veitt er í 20. gr. VI. C. í fjárhagslögunum, þegar liand-
ritið er búið, og' skólameistarinn hefir Iátið sér lynda, hvernig frá
því er gongið; þó skal stjórnarráðið enn fremur láta í Ijósi, að það
veröur að álíta, að svo stór bók, sem til er ætlazt að þetta rit
verði, sé of yfirgripsmilril til kennslu við hinn lærða skóla, og
byst því við, að útleggingin verði stytt svo mikið, að bókin með
engu móti verði meiri en 16 arkir.
'1S70.
S. febrúar.
febrúar.