Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 16
8
UM HJÓNAVÍGSLU AI<’ UPPGJAFAPEESTI.
1870- að lögum eða ekki, skal því við bætt, að það er hvorttveggja, að
16. febrúar. það fylgir af sjálfu ser, að sókuarpresturinn einn getur leyft að-
göngu til kirkjunnar til embættisverka, hvort sem hún er bænda
kirkja eða ekki, enda leiðir það af eðli málsins og skýru lagaboði
í tilskipun 30. apríl 1824, 14. gr., að onginn annar getur gefið
saman hjón, en sá prestur, sem iiefir embætti við kirkjuna eða þá
sá prestur, sem hann hefir falið á liendur, fyrir sína hönd og uppá
sína ábyrgð, að gegna þessu embættisverki, og býst því stjórnar-
ráðið við, að þér sjáið svo um, að þessu verði frámfylgt eptir-
leiðis.
18. febrúar. 11. Auglýsing aðalpóststjórnarinnar um ýmislegt, er
snertir póstferðirnar milli Danmerkur og íslands1.
Um leið og vísað er til auglýsingar frá annari póstskrifstofu,
29. f. m. um það, að póststjórnin tekur að sér að annast póst-
samgöngur milli Danmerkur, Færoyja og íslands, skal það hér-
með kunngjört, að gufuskip stjórnarinnar, Diana, mun leggja liéðan
frá Kaupmannahöfn 1. marzm. þ. á., eða svo fljótt þar á eptir, sem
veður og ísar leyfa, og síðan mun birt nákvæmari ferða-áætlun.
það má ætla, að farið verði á milli á 10 eða 12 dögum, ef
ekki bregður útaf því sem venjulegt er.
Fyrir far með póstgufuskipinu verður að borga:
fyrsta rdm. annað rúm. viðbót fyrir sér- stakt rúm
rd. rd. rd.
Milli Kaupmannahafnar og íslands 45 36 15
— — °£ þórsliafnar 35 27 12
— — og Leith eða
Loirvíkur 26 15 9
') Eeglugjörí) um póstsendingar milli Danmerkur og Reykjavíkur,
25. ágúst 1869, er auglýst á islenzku af póstafgreibslumanninum ;
Reykjavik, Óla Finsen, og er prentuí) i Norbanfara VIII, 97, 15.
desembr. I sama blabi Norbanfara er prentut) auglýsing abal-
póststjórnarinnar 28 september 1869, um póstsendingar milli Dan-
merkur, Islands og Færeyja á árinu 1870.