Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 83
DM KENNSLD YFIRSETDKVENNA,
75
64. Bréf dómsmálastjórnarinnar til amtmannsins yfir ísm
vesturumdæminu, um kennslu á yfirsetnkvennaskól- 9- j«lí-
anum.
í bréfi, dagsettu 2. maím. þ. á., liafið J)ér, herra amtmaður,
samkvæmt beiðni konunnar Olafar Hjálmarsdóttur, — af því, að þér
álítið það mjög æskilegt, að konu úr vesturumdæminu verði sem
fyrst kennt yíirsetufræði á yfirsetukvennaskóla hinnar konunglegu
fæðingarstofnunar í Kaupmannahöfn, — farið þess á leit, að téð Olöf
Hjálmarsdóttir komist að á skólanum kauplaust, annaðhvort á þessu
ári, ef einhver þeirra kvenna, sem fengið hafa skóla 1870, hefði
sagt til forfalla, eða, ef svo ekki væri, þá á næsta ári.
Bptir að stjórnarráðið hefir skrifazt á við stjórnina yfir fæð-
ingarstofnuninni, gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og
svo þér birtið það, að Olöf Hjálmarsdóttir getur ekki komizt að
kauplaust á þessu ári, þareð hvorug þeirra tveggja kvenna, sem
þegar hafa fengið loforð, hafa enn sem komið er sagt til forfalla,
og það er því óvíst, hvort þær komi eða ekki, en aptur á móti
má liún búast við að fá skóla ókeypis á næsta ári. Ef þér getið
fengið vistneskju um það frá norður- og austur-amtinu, að önnur-
hvor hinna, Kristín Sigurðardóttir á íngjaldstöðum eða Kristín
Guðný Sigurðardóttir á Stóruvöllum komi ekki, þá er samt ekkert
því til fyrirstöðu, að Olöf Hjálmarsdóttir nú á þessu ári komist
að kauplaust á yfirsetukvennaskólanum, en þar byrjar nýtt kennslu-ár
1. septbrm. næstkomanda.
65. Bréf dómsmálastjórnarinDar til amtrnannsins yfir 9. júii.
norðnr- og auslurumdæminu, um póstferð frá
Akureyri til Reykjavíkur i ágústmánuði.
í bréfi 20. maím. þ. á. hafið þér, herra amtmaður, skýrt frá,
að vegna þeirrar breytingar, sem gjörð hefir verið á ferða-áætlun
póstgufuskipsins á þessu ári, hefðið þér í hyggju að senda um-
boðs- og sýslureikninga frá norður- og austurumdæminu með þeim