Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 86
78 UM SIiULDIR EPTIR UMBOÐSMANN.
1870. hefir feng-iö, er svo ábóta vant í mörgu og einkum í því, að þar
9. jiilí. sést ekki, liver sé réttur eigandi að jörð þeirri, sem hér hefir verið
getið um, svo að vér sjáum oss eklri fært að tiltaka nákvæmlegar,
hvernig eigi að fara með málið til þess að ná skuldinni.
9. júii. 67, Brct' dómsmálastjórnarinnar til amtmannsins yfir
norður- o<>- austurumdæniinu, um hallæri í nokkrum
hreppum í Þingeyjarsýslu.
Með bréfi, dagsettu 10. f. m., hafið þér, herra amtmaður, sent
hingað sex bænarskrár, þar sem búendur í Sauðaness, Svalbarðs,
Presthóla, Kelduness, Húsavíkur og Helgastaða hreppum í þingeyjar-
sýslu sækja um, að þeim verði veitt hlutdeild í þeim gjöfum, sem
nefnd nokkur, er sett var til að afstýra hallæri á íslandi, safnaði
saman, eöa þá að öðrum kosti að þeim verði veittur styrkur á
annan hátt, til þess að komast hjá hættu fyrir hallæri að
vetri komandi, og jafnframt þessu hafið þér, um leið og þér í
almennum orðatiltækjum og án þess að nokkurt álitsskjal frá sýslu-
manninum fylgi með, vitnið að það sé satt, sem sagt er í bænar-
skránum, farið fram á, að ráðstafanir verði gjörðar til þess að
útvega matvörur að hausti bæði handa hreppum þeim, sem nefndir
voru, og ef til vill handa nokkrum öðrum sveitum, til þess að þær
geti komizt hjá hallæri að vetri komandi.
Stjórnarráðið þykist mega í þessu efni gjöra ráð fyrir, að þér
samkvæmt bréfi 3. septbr. f. á.1 hafið sagt hlutaðeigendum til um
það, að þeir geti ekki búizt við neinni hlutdeild í þeim hinum
nefndu gjöfum, þareð öllu því er fyrir löngu ráðstafað, sem safnað
var, og ef þér hafið ekki tilkynnt þetta áður, verður að mælast
til þess, að þér þá nú birtið þeim það sem með þarf í þessu efni.
En þar að auki skal þess getið, að svo ónógar skýrslur eru sendar
með þessu máli, að stjórnarráðið hefir ekki með neinu móti getað
gjört sér hugmynd um, hvernig málinu í raun réttri sé varið.
Tíbindi um stjórnarmálefni Islands II., 817.