Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 102
94
UM AÐGJÖKÐ KIRKJU A MUNKAHKrA.
1870. og svo þér birtið það, aö stjórnarráöið leyíir það, sem sókt
12. ágúst. er um.
18. ágúst. 81. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins
yfir íslandi, um nýja rentuklippinga við ríkis-
skuldabréf.
Eptir að dómsmálastjórnin hafði sent fjárhagsstjórninni til
úrslita bænarskrá þá, sem þér, herra stiptamtmaður, senduð hingað
með bréíi 25. marz þ. á., en í þeirri bænarskrá getur landfógeti
þess, að þörf sé á, að ákveðið verði þegar á þessu ári, hvernig
fara skuli með þau konunglegu ríkisskuldabréf með rentuklippingum,
er ganga á íslandi, þegar klippingarnir sé gengnir upp, hefir íjár-
stjórnin gefið oss til vitundar, að þá skuli senda henni skuldabréfin,
fctil þess að settur verði á þau stimpill, er skuli votta, að nýjar
arkir af rentuklippingum sé látnar af hendi; verða síðan rílds-
skuldabréfin send aptur ásamt örkunum. Fyrir þessa sök skulu
allir þeir menn á íslandi, sem eiga slík skuldabréif, skila þeim til
landfógeta innan 11. júním. 1871, og láta bréf fylgja með til fjár-
hagsstjórnarinnar, en í því bréfi skal tilgreina einkunnarstaf skulda-
bréfsins, töluna á því, daginn sem það er gefið út, og upphæðina;
enn fremur skal tilgreina í bréfinu með svo mikilli nákvæmni og
svo fullkomlega, að enginn misskilningur geti á orðið, heiti eigand-
ans, stétt hans og heimili. Landfógeti verður að veita þeim
mönnum, sem senda honum skuldabréf, skýrteini til bráðabirgða
um það, að hann hafi tekið við skuldabréfunum, en skýrteinum
þessum verður að skila aptur, er eigendurnir fá aptur skuldabréf
sín með nýjum klippingum. Síðan á landfógeti að senda ríkis-
skulda- og eptirlauna-stjórnardeildinni með póstskipinu sem embættis.
erindi þau bréf og skuldabréf, sem hann hefir tekið ámóti, en
stjórnardeildin mun aptur senda honum þau á sömu leið ásamt
hinum nýju rentuklippinga-örkum handa eigendunum, en þeir verða
að rita kvittun á bráðabirgða-skýrteinin fyrir því, að þeir hafi með-
tekiö skuldabréfin með nýjum klippingum, og verður að hagaþess-