Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 103
UM RÍKISSKULDABRÉF.
95
ari kvittun samkvæmt því, sem fyrir er sagt í auglýsing fjárhags-
stjórnarinnar 22. septbrm. 1859, 18. gr.1 þessu til sönnunar
skal landfógeti senda fjárhagsstjórninni hin innleystu bráðabirgða-
skýrteini, og rita pau öll í bók, sem sýnir, hvenær þau sé út gefln
og handa hverjum, hvenær landfógeti hafi sent frá sér skuldabréfin
og fengið pau aptur, og ennfremur, livenær bráðabirgða-skýrteinin sé
innleyst og send stjórnarráðinu. fess skal getið, að hver oinn
verður sjálfur að sjá um, að koma skuldabréfum sínum til land-
fógeta og sækja þau aptur hjá honum.
Um leið og þetta hérmeð gefst yður til vitundar, yður til
leiðbeiningar og svo þér birtið landfógeta það, mælumst vér til, að
þér, herra stiptamtmaður, auglýsið það, sem með þarf, í frétta-
blöðum,- og gjörið þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru, og veit-
um vér yður myndugleika til að bæta við þeim ákvörðunum, sem
yöur finnst ástæða til.
Að endingu skal því við bætt, þeim til leiöbeiningar, sem vilja
ekki nota þessar ráðstafanir, að arkir með nýjum rentuklippingum
fást á ríkisskulda-skrifstofunni í Kaupmannahöfn allt sumarið 1871,
gegn þvív að skuldabréfin verði fram lögð til stimplunar.
82. Anglýsing til íslands, víðvíkjandi því, að til-
skipun 4. niaim. 1803 um það, hvernig verzlun-
armenn og farmenn eigi að haga sér, þegar ófriður
er milli útlendra sjóvelda, skuli á uý hafa lagagildi.
Samkvæmt heimild þeirri, er Hans Hátign Konungurinn hefir
gefið stjórn utanríkismálanna í dag, auglýsist hérmeð, að vegna
ófriðar þess, sem lcominn er upp milli Prakklands og Prússaveldis,
skal tilskipun 4. maí 1803 fá lagagildi á ný, þó með þeim
nákvæmari ákvörðunum og breytingum, sem hér segir:
1. gr.
Samkvæmt tilskipun handa íslandi um skrásetning skipa, dag-
settri 25. júní 1869, skulu hin konunglegu latínsku leiðarbréf, sem
') Deparlementsiidenden 1859, bls. 659—61.
1870.
18. ágúst
19. ágúst