Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 107
UM LÖGSÓKN FYRIR HÝSING PKESTS.
99
láta skjóta dóminum til æðri rettar, og mælumst vér til að það
verði birt Einari Ásmundssyni, að með því hann sé dæmdur sýkn
af ákæru þeirri, sem hér er getið um, þykir stjórnarráðinu ekki
fært, að halda lengi'a út í þetta eina mál.
85. Bréf dómsmálastjórnarinnar til norður- og austur-
amtsins, um ótta fyrir hallæri í Þingeyjarsýslu.
í bréíi 30. f. m. hefir amtið á ný skýrt frá, að búast megi
við hallæri í nyrðstu hreppum Jingeyjarsýslu, og sókt um, að
fluttar verði 100 tunnur af kornmat til Húsavíkur, eða þá, ef því
verður ekki við komið, til Akureyrar, og að amtið megi verja
þessum forða til að afstýra hallærinu að vetri komanda.
Útaf þessu verður hérmeð til vitundar gefið, að stjórnarráðið
hefir fengið vitneskju frá Örum og Wulff um, að þeir hafi í
sumar sent til verzlunar sinnar á Húsavík jafnmikið af kornmat
og þeir sé vanir, 830 tunnur af rúgi og 200 tunnur af bánka-
byggi, auk þess segja þeir, að lausakaupmaður Predbjörn skipstjóri
hafi flutt þangað 300 tunnur af rúgi, og verzlunarfulltrúi þeirra
keypt af því hérumbil 26 tunnur; ennfremur virðist þeim megi
áhta, að nægur forði sé til á Akureyri, og að flutt hafi verið til
Vopnafjarðar fram yfir það, sem vant er að flytja þangað, 150
tunnur af korni, enda sé það og lagt fyrir verzlunarfulltrúa þeirra
þar, að liann reyni til, ef á þarf að halda, að flytja þenna forða
■til verzlunarinnar í Húsavík.
fareð nú þannig er ástatt, finnst stjórnarráðinu ekki ástæða
til, að gjöra þessar sérstaklegu ráðstafanii', sem amtið hefir stungið
uppá, en verður að láta það vera komið undir amtinu sjálfu, að
nota þá aðferð, sem getið er í bréfi stjórnarráðsins 25. ágúst f.
á.1, til þess að afstýra hallæri, ef það vofir yíir.
*) Tibindi um stjórnarmálefni Islands II., 814-
1870.
21. septbr.
28. septbr.