Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 108
100
UM LYFJASKEÍ-NA 1869.
1870-
28. septbr.
28. septbr.
86. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins
og amtmannamia á Islandi, um lyfjaskrána 1869.
Til samlags við bréf stjórnarráðsins 30. apríl þ. á., sendum
vér yður (tit.) nokkur exemplör af lyfjaskránni 1869, og fyrsta
viðbæti við hana; á hvorttveggja að koma til gildis frá 1.
janúarm. 1871. Yér mælumst þessvegna til, að þér sendið lyfsölum
og læknum peim í suðurumdæminu (norður- og austurumdæminu,
vesturumdæminu), sem sjálflr láta af hendi lækningameðöl, hverjum
eitt exemplar, sitt af hvoru.
87. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins
yfir íslandi, um ótta fyrir hallæri í nokkrum austur- <
sveitum.
I skýrslu nokkurri, sem pér, iierra stiptamtmaður, hafið sent
hingað með bréfi 17. f. m., og skýrir frá umsjónarferð yðar um
suðurumdæmið nú í sumar, hafið þér látið í ljósi, að illa horfist á
víða hvar í Vesturskaptafellssýslu og að nokkru leyti í Eyjafjalla-
lirepp í Rangárvallasýslu, bæði sökum þess, að bændur hafi neyðzt
til í harðindunum í fyrra að farga nokkru af þeim pening til viður-
væris, sem nauðsynlegur er til búskapar, og af því, að illa hafi
viðrað í sumar um heyskapartímann; ofan á þetta kemur, að of 1
margir búa á einni og sömu jörðu, og eykur það mjög fátækt
manna. þareð það lítilræði, sem eptir er af gjafakorninu, — þó
því muni væntanlega verða útbýtt meðal íbúa í þessum sveitum —
ekki mun nægja til þess að afstýra hallæri, liafiö þér, herra stipt-
amtmaður, borið upp, hvort stjórnarráðinu fyndist ekki ástæða til,
að veita yður myndugleika til, eptir atvikum að gjöra þær ráðstaf-
anir, sem meö þarf.
Utaf þessu mælumst vér til, herra stiptamtmaður, að ef
nauðsyn ber til að g-jöra sérstaklegar ráðstafanir til að afstýra
hallæri í nefndum sveitum að vetri komanda, þá framkvæmið þér
allt það, sem með þarf í þessu máli, og veitum vér yður myndug-
i