Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 128
120
UM NEFND í IjANDBÚNAÐARMÁLINU.
1870. þér, herra stiptamtmaður, í fyr nefndu bréíi yðar hafið tekið til
7. nóvbr. nafngreinda menn til nefndarinnar, og þar á meðal dannebrogsmann
Jón Sigurðsson á Gautlöndum í Iiingeyjarsýslu, yerðum vér að
eins að geta þess, þareð það að öðru leyti er á sjálfs, yðar valdi,
hverja þér setið í nefndina, að með því sjá má af bænarskrá frá
nefndum Jóni Sigurðssyni til stjórnarráðsins, að fyrrum amtmaður
í norður- og austurumdæminu Havstein liefir látið liefja lögsókn
gegn iionum útaf því, að hann sc grunaður um að hafa dregið
undan nokkuð af tékjum ríkissjóösins af þingeyjarsýslu, þá er hann
var settur þar sýslumaður árið 1861, er það vitaskuld, að ekki
getur komið til umtals að kjósa hann í nefndina, fyr en hann sé
dæmdur sýkn saka, eða þá málssóknin fallin niður.
þess slcal ennfremur getið, að stjórnarráðið þegar þar að
kemur, samkvæmt sérstakri uppástungu, mun fúst á, að veita þeim
nefndarmönnum, sem eiga okki iieima í Reykjavík, hæfilega fæðis-
peninga fyrir þann tíma, er þeir dveljast við þetta starf þar í
bænum, og svo þeim nefndarmanni, sem semur undirstöðu-frum-
varpið, slíka þólcnun, sem samsvari fyrirhöfn hans og því, hvernig
frá verkinu sé gengið; sendum vér yður hér með til hagnýtingar
handa nefndinni skjöl þau frá hinni íslenzku landbúnaðarnefnd, er
sett var samkvæmt konungsúrskurði 23. apríl 1845, sem eru í
vörzlum vorum, og eru þau talin á skrá þeirri, sem með fylgir;
mælumst vér til að fá þessi skjöl aptur, þegar búið er að nota
þau, og sömuleiðis að fá vitneskju um þær ráðstafanir, sem þér
gjörið, samkvæmt því, sem hér er ritað.
22. nóvbr. 107. Bréf dómsmálastjórnarinnar til norður- og austur-
amtsins, um borgun fyrir flutning á betrunarhúss-
fanga.
1 sambandi við bréf stjórnarráðsins 29. ágúst þ. á. til-
kynnum vér hérmoö amtinu, til leiðbeiningar, að hingað hefir bor-
izt skilríki frá sýslumanninum í þingeyjarsýslu um það, að samn-