Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 141
UM LÆKNAFERÐIR t Sl<AFTAFELLSSÝSLl-.
133
setta héraðslækni í austnrhéraði norður- og' austurumdæmisins hefir
stjórnarráðinu ekki fundizt ástæða til að veita neitt endurgjald,
og mun stjórnarráðið sjá um að sá, sem embættið verður veitt,
verði skyldaður til að fara þessar ferðir kauplaust.
7. Bréf dómsmalastjórnarinnar til iitanríkisstjóinar-
innar, um skipstrand og gripdeildir enskra sjómanna.
I bréfi 6. f. m. hefir utanríkisstjórnin, eptir tilhlutun hins
frakkneska sendiboða í Danmörku, mælzt til, að dómsmálastjórnin
annaðhvort sendi svo fljótt sem verður reikningana viðvíkjandi
hinu strandaða fiskiskipi »Emi!ie« D 53 frá »Dunkerque«, eða,
ef þetta ekki er hægt, láti til skýrslur, svo liúu fullkomlega geti
skýrt sendiboðanum frá, hversvegna málið hafi dregizt.
Utaf þessu gefst utanríkisstjórninni til vitundar, að þessir
reikningar komu ekki hingað með síðasta póstskipi frá íslandi í
miðjnm fyrra mán., eins og þó búizt hafði verið við. Með því
málið með þessu móti ekki mun verða á enda kljáð fyr en í vor,
þegar gufuskipsíerðirnar byrja uptur til íslands, skal stjórnarráðið
samkvæmt tilmælum utanríkisstjórnarinuar ekki leiða hjá sér, að
skýra frá þeim atvikum við þetta strand, sem því eru kunnug.
Eins og sjá má af skjölum þeim, sem amtmaðurinn ýfir
norður- og austurumdæminu sendi utanríkisstjórninni beina leið,
en hún aptur sendi hingað meö bréfi, dagsettu 18- febrm. 1869,
rak skipið á grunn við Skagann í norður- og austurumdæminu,
og skildu skipverjar þar við það; fundu síðan tveir enskir skip-
stjórnarmenn skipið á Skagafirði, og sigldu meö þaö uppá Siglu-
fjörð 5. ágúst 1868; hreppstjórinn þar lét þá láta alla lausa
niuni ofan í farmrúm skipsins, og setti innsigli bæði fyrir farm-
rúmið og' fyrir káettuna. Nóttina milli 6. og 7. s. m. var farm-
rnmið rifið upp og káettan brotin, höfðu þá skipverjar af hinu
enska skipi »Onward«, er skipstjórnarmaður »Abe« stýrði, rænt þar, og
tekið alla kaðla af skipinu og það, sein laust var, en skipstjóri
sbilaði því þó að mestu leyti aptur, og var þá ekki gjört neitt
1871.
24. janúar
24-janúar