Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 165
l'M HEONINGAKHÚS OG FANGELSI. 157
flytja fangelsið, þá virtist alþingi þessi ákvörðun ósanngjörn, þegar
svo stæði á, að sýslumaður gæti ekki fengið sér bústað, þar sem
fangelsið væri. Alþing hefir því stungið uppá þeirri breytingu,
að fyrst um sinn verði einungis byggð fangelsi í þeim lögsagnar-
umdæmum, þar sem bústaðir sýslumanna eru fast ákveðnir, en
það er í þeim kaupstöðum, sem útlend skip eiga fyrst að koma við
á eptir lögum 15- apríl 1854, og þar að auki á verzlunarstaðnum
Húsavík í þingeyjarsýslu. Ætti þá að nota hvert af þessum
fangelsuin fyrir straíf-fangelsi, ekki einungis handa sýslum þeim
og kaupstöðum, þar sem fangelsin eru, heldur og handa liinum
öðrum lögsagnarumdæmum, þar sem engin fangelsi eru; meö
þessari tilhögun fengist og varðhaldsfangelsi á þeim stöðum, þar
sem að líkindum væri mest þörf á þeim. Ef svo reynslan sýndi,
að fangelsi þessi yrði ónóg, eða örðugleikinn við að flytja til
þeirra afbrotamenn yrði tilfinnanlegur, skyldi byggja fangelsi þar,
sein nauðsynlegast þætti, en jafnframt yrði þá að ákveða hlut-
aðeigandi sýslumönnum fasta bústaði, og mætti þá gjöra það með
því, að fá þeim þjóðjarðir til ábúðar. Alþingi fannst helzt þörf
á, að koma upp fangelsi i Skaptafellssýslu i suðurumdæminu og
í Húnavatnssýslu í norður- og austurumdæminu, og mundi það
eigi erfitt að fá þegar fast ákveðið sýslumanns-setur í Skapta-
fellssýslu að Kirkjubæjarklaustri, þar sem sýslumaðurinn, sem nú.
er, býr, og liggur þessi jörð haganlega fyrir sýslubúa. Eptir
þessu vaí-ð að breyta 2. og 3. gr. frumvarpsins, en að öðru
leyti fann alþing ekki ástæðu til að stinga uppá öðrum breytingum,
en þeirri, að í 5. gr. sé sett orðið »fangelsi« í staðinn fyrir »sýslu-
fangelsi«, þar sem fangelsin áð 'minnsta kosti fyrst um sinn ætti
að vera fyrir stærra hérað' ep eija sýslu. Með þessum breytingum
yrði þá 2. og 3- grein frumvarpsins á þessa leið;
2. gr.
»í sameiningu við líegningarhúsið skal byggja fangelsi handa
Reykjavíkur kaupstað og Gullbringusýslu. Sömuleiðis skal byggja
fangelsi á ísafirði og í Stykkishólmi í vesturumdæminu, á Akureyri,
í Húsavík og á Eskifirði í norður- og austuruindæminu, og á
Vestmannaeyjum í suðurumdæminu.
1871.
4. marz.
11*