Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 166
1871.
4. marz.
158 UM HEGNINGAKHÚS OG FANGELSI.
í fangelsum þessum skulu útteknar fangelsishegning'ar þær,
sem menn eru dæmdir í fyrir afbrot, sem mál er höfðað útaf á
íslandi. Hlutaðeigandi amtmaður ákveður, úr hverjum lögsagnar-
umdæmum menn skuli úttaka liegningu í hverju af fangelsum
jiessum fyrir sig.
Fangelsin skulu og höfð fyrir varðhaldsfangelsi handa lög-
sagnarumdæmum þeim, or jiau liggja í.«
3. gr.
»Nú verða bústaðir sýslumanna fast ákveðnir í fleiri sýslum,
en nú er, og skal þá þar bj'ggja fangelsi á sýslumanns-setrunum.»
Konungsfulltrúi heflr fallizt á breytingar þessar, og jafnframt
lagt það til, að einnig verði byggt fangelsi í Skaptafellssýslu og
Húnavatnssýslu, en þetta atriði var ekki í breytingu alþingis á
frumvarpinu.
Stjórnin varð fyrir sitt leyti að aðhyllast breytingar þær, sem
alþingi hafði stungið uppá. Upphaflega var aðeins ætlazt til
að setja eitt fangelsi fyrir hvert amt, og þarsem frumvarp stjórn-
arinnar fór fram á, að byggja skyldi sýslufangelsi, þá kom þetta
til af því, að alþing hafði getið þess í álitsskjali sínu í hegningar-
lagamálinu,1 að það áliti lientugra, að í hverri sýslu yrði komið
upp fangelsi; stjórninni fannst uppástunga alþingis fara hæfilegan
meðalveg í þessu atriði, en af því að þörf verður á að gjöra þau
fangolsi rúmlegri, sem verða byggð fyrst, sökum þess, að ])au
er.u ætluð fleiri sýslum en einni, og meiri kostnaður mun rísa
hér af, þótti réttara, að hafa 3- grein nokkuð öðruvísi, en alþing
hafði stungið upp á, og láta það nægja, að veita dómsmálastjórninni
heimild til, að láta byggja fleiri fangelsi, þar sem sérstaklega er
þörf á því. þar sem alþing hafði stungið uppá, að amtmenn-
irnir skyldu ákveða, úr hverjum lögsagnarumdæmum menn skuli
úttaka hegninguna í hverju af fangelsum þeim, sem byggja á,
í'yrir sig, fannst stjórninni réttara, að leggja þetta vald í hendur
stiptamtmanni, og skal hann þá einnig segja fyrir um, hvort
») Tifeindi frá alþingi, 1867, II., 604.