Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 168
160
TILSKIPAN UM FJÁKKLÁÐA M. M.
1. gr.
Komi upp skæður næmur sjúkdómur í fénu á íslandi, og svo
sérsfcaklega 'stendur á, að aðskilnaði peim á fénu og lækningum,
sem skipaö er fyrir um í tilskipun 5. janúarmán. 1866, verður
ekki komið við <ið notum, skal lilutaðeiganda amtmanni heimilt,
til þess að sporna við frekari útbreiðslu sjúkdómsins, að láta
.skera niöur; feð á því eða þeim heimilum, þar sem lians hefir vart
orðið, þó skal amtmaður, þar sem prófaður dýralæknir er, hafa
hann og annars iilutaðeiganda lögreglustjóra, alþingismann og tvo
bændur, er hreppsbúar kjósa, í ráðum með sér, áður látið sé skera
niður a þenna liatt.
2. grein.
[ægar niðurskurður á fram að fara samkvæmt því, sem nú
var sagt, þá skal hreppstjóri og aðstoðarmenn jHfcr^ sem nefndir
eru í tilskipun 5. janúarmán. 1866 2. grein, meðAjmsjómTrTútaií
eiganda sýslumanns virða kindurnar, áður þeim sé slátrað. þegar
kindurnár eru virtar, skal fyrst setja á þær hverja um sig það
verð, sem þær eru í eptir ásigkomulagi þeirra, þegar þær eru
skornar, og eptir almennu gangverði á þeim- stað ög á þeim tíma
árs, þó svo, að ekki sé iiaft tillit til sjúkcfgjns þess, sem er orsök
í niðurskurðinum, og þar næst það verð, sem*3etla má að kindurnar
hafi, þegar búið er að slátra þeini. Tvo þriöjunga af mismuninum
af þessum tveim virðingarverðum skal bæta eigendunum.
3- grein.
Af endurgjaldi því, sem fundið er á þenna liátt, skuliunllir
Tjw-eigendur í þeim lirepp, þar sem látið hefir verið skera niður,
greiða- helminginn, nemi hann eigi meiru, en 100 rd., en ella skal
hann greiddur af öllum fjáreigendum í þeirri sýslu, sém í hlut
■ á; í ifáðum tilfellum skal jafna honum niður óg heimta hann
saman samkvæmt reglum þeim, sem settar eru í 3. grein tilskipunar
5. janúarmán. 1866. Hinn helmingimí skal greiða úr jafnaöar-
sjóði þess arnts, sem í hlut á, og skal borga hlutaðeigenduin hann
undir eins og búið er að lieimta gjaldið til jafnaðarsjóðsins saman.
þó getur amtmaður, ef því verður við komið eptir ástandi jafnað-