Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 180
172
DM SKÓLAVÖUÐONA í REYKJAVÍK.
1871.
2. maí.
12. maf.
31. Bréf dóiítsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins yfir
íslandi, um Ián til að Ijúka við aðgjörð á skólavörð-
nnni í Reykjavík.
Með bréfi, dagsettu 1. febrm. þ. á., hafið þér, herra stipt-
amtmaður, sent hingað bænarskrá, þar sem bæjarstjórnin í Reykjavík
sækir um leyfi til, að taka 700 rd. lán fyrir bæjarsjóðinn, til að
ljúka við aðgjörð hinnar svo nefndu »skólavörðu« eða Kriegers
Minde og mælt með, að þetta verði veitt með því skilyrði, sem
bæjarstjórnin sjálf hefir stungið uppá, að í næstu 28 ár verði
borgaðir 6 af hundraði á ári, bæði sem vextir af láninu og uppí
innstæðuna, þannig að lánið að þeim tíma liðnum verði alborgað.
Ótaf þessu skal y'ður kunngjört, yður til leiðbeiningar, að
stjórnarráðið veitir þetta, sem sókt hefir verið um.
32. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins yfir
íslandi, um nýja rentuklippinga við ríkisskuldabréf.1
í bréfi 1. marz þ. á. hafið þér, herra stiptamtmaður, leitað
samþykkis stjórnarráðsins til þess, að þér, með því auglýsing fjár-
liagsstjórnarinnar 22. septbr. 18592 með öllu er ókunn á íslandi,
hafið veitt landfógetanum, eptir uppástungu hans, heimild til, að
láta setja í skýrteini þau til bráðabirgða um það, að konungleg
ríkisskuldabréf, sem ganga á íslandi, sé látin af hendi, til þess
að fá nýja rontuklippinga, leiðarvísi handa þeim eigendum að ríkis-
skuldabréfum, sem hlut eiga að máli, og greiða kostnaðinn við
prentun eyðublaða til skýrteinanna, en liann nemur í mesta lagi
8 rd., af því fé, sem veitt er með fjárhagslögunum 1870—71,
20. gr. VI. C. til óvissra útgjalda.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yöur til leiðbeiningar og
svo þér birtið það, að stjórnarráðið fellst á uppástungu yðar.
’) Tibindi um stjórnarmálefni íslands, III,, 94.
2) ,,Departementstidenden“ 18S9, bls. 651 — 61.