Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Side 182
174
KONCNGLEG AUGLÍSING TIL ALÍ>INGIS.
1871. 7. Tilslripun 4. marzmán. 1871, er inni heíir að lialda
22. maí. viðauka við tilskipun 5- janúarmán. 1866, um fjárkláða og önnur
næm fjárveikindi á Islandi.
8. Tilskipun sama dag, um byggingu hegningarhúss og fangelsa
á íslandi, m. fl.
jöegar lagaboð þessi hafa verið samin, hafa verið vandlega
íhugaðar athugasemdir þær, sem alþingi hefir gjört um þau, og
hefir sumurn þeirra eptir því verið breytt í ýmsu og ýmislegt verið
nákvæmar ákveðið.
Að því er sérstaklega snertir lögin, 2. janúarmán. 1871, mun
alþing af þeim athugasemdum, sem gjörðar eru um þetta mál í
ástæðunum fyrir frumvarpi því til nefndra laga, sem lagt var fyrir
ríkisþingið síðasta — en fulltrúi Vor mun skýi-a alþingi frá þeim,
— fá vitneskju um, hversvegna stjórnin hefir álitið það skyldu
sína, að leggja frumvarp það, sem téð lög eru bygð á, fyrir ríkis-
þingið. Með því ríkisþingið samsinnti frumvarpinu, liefir stjórnin
getað látið lög þessi ganga út, og er með þeim hin óraskanlega
undirstaða fengin til endurbóta á flárhags- og stjórnarmálefnum
íslands.
Með tilliti til frumvarps þess, sem lagt var fyrir alþing 1869,
til stjórnarskrár um hin sérstaklegu málefni íslands, hefir alþing í
þegnlegri bænarskrá farið þess á leit, að nefnt frumvarp verði
ekki gjört að lögum, einsog það þá lá fyrir þinginu, en að lagt
verði fyrir þing á íslandi með fullu samþykktaratkvæði 1871 frum-
varp til stjórnarskrár fyrir ísland, sem að minnsta kosti taki eins
mikið tillit til landsréttinda íslendinga, einsog það frumvarp til
stjórnarskrár fyrir ísland, sem kom frá alþingi 1867, og til vara,
að frumvarp til stjórnarskrár fyrir íslandj sem alþing hafði samið,
verði allramildilegast staðfest, og hefir þingið, ef þessu skyldi ekki
verða veitt áheyrsla, ráðið frá því, að hið konunglega frumvarp til
stjórnarskrár um hin sérstaklegu málefni íslands öðlist lagagildi.
það hið sama, sem olli því, að ógjörandi var, að fallast á
frumvarp það, sem kom frá alþingi 1867, einsog nákvæmlega var
útlistað í ástæðunum til frumvarps til stjórnarskrár fyrir ísland,
sem lagt var fyrir 1869, bar og til þess, að ekki hefir orðið tekið
tillit til breytinga þeirra á þessu síðara frumvarpi, sem alþing