Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 199
U.M JARÐABÆTUR Á KLAUSTURJÖRÐ.
191
48. Bréf dómsmálastjórnarinnar til amtmannsins yfir
norður- og austurumclæminu, um verðlaun fyrir
jarðabætur á klausturjörðu.
Með bréfi 27. febr. þ. á. hefir amtið sent liingað skjal nokkurt,
þar sem umboðsmaður Möðruvalla klausturs, þorsteinn dannebrogs-
maður Daníelsson, fer þess á leit, að leiguliðanum á klausturjörð-
unni Hnjúki, Jóhanni Jónssyni, verði gefin upp eins árs landskuld
sem þóknun fyrir frábæran dugnað hans og framtakssemi, þar
sem hann hefir hlaðið garð um cúnið, og er byrjaður á að girða
um allmikið svæði til þess að rækta það og gjöra þar tún, og
jafnframt búið til veg upp að bænum; um leið og amtið getur
þess, að slík ástundun eigi það skilið að hljóta verðlaun, hefir
það stungið uppá, að téðum leiguliða verði veittir 25 rd. í verð-
laun af búnaðarsjóði amtsins, með því skilyrði, að hið opinbera
gefi honum upp helminginn af Ieigu og landskuld fyrir yfirstandandi
fardagaár, sem nemur 190 álnum.
Útaf þessu gefst yður, herra amtmaður, til vitundar, yður til
leiðbeiningar og til þess þér gjörið þær ráðstafanir, sem með þarf, og
birtið það hlutaðeigendum, að stjórnarráðið bæði fellst á það, að téðum
leiguliða sé veitt 25 rd. verðlaun af búnaðarsjóði amtsins, og gefur
honum upp helming leigu og landskuldar fyrir fardagaárið 1871—72.
49. Bréf kirkju- og kennslnstjórnarinnar til stiptsyfir-
valdanna áíslandi, um prestsvígslu skólalærisveins.
Með bréfi, dagsettu 27. febrúarm. þ. á., hafið þér, herra stipt-
amtmaður, og þér, háæruverðugi herra, sent liingað bænarskrá,
þar sem lærisveinn í hinum lærða skóla í Beykjavík, Jón Bjarnason
frá Straumfírði, sækir um, að fá leyfi konungs til að mega vígjast
til prests og taka ámóti veitingu á Stað í Súgandafirði í Vestur-
ísafjarðar prófastsdæmi, og hafið þér jafnframt farið þess á leit,
að stiptsyfirvöldunum verði veittur myndugleiki til, að veita téðum
lærisveini brauðið með fyrirheiti um, að honum skuli veitt eitt af
1871.
21. júm'.
21. júni.