Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 205
DM LÁN TIL VEGABÓTA. 197
500—550 rd. fyrir hvort ár. jbareð þér samt sem áður álítið
það mjög- æskilegt, að þessi útgjöld verði borguð þegar á þessu
ári, með því kostnaðurinn þá ef til vill yrði töluvert minni, en
þessu verður eigi komið við nema með því að taka lán handa
amtsvegasjóðnum, liaíið þér stungið uppá, að yður verði veitt
heimild til, að taka til láns allt að 1000 rd. fyrir hönd amts-
vegasjóðsins, til þess að þessum vegabótum verði komið fram,
með þeim kjörum, að goldnir verði 4 rd. af hverju 100 í vöxtu
á ári, og helmingurinn af láninu borgaður aptur fyrir árslok
1872, og hinn helmingurinn fyrir árslok 1873, og hafið þér jafn-
framt farið þess á leit, að fá lánið af hjálparsjóði þeim, sem
stofnaður er samkvæmt 10. gr. í fjárhagsáætlun Islands fyrir
reikningsárið 1871—72, ef þér ekki getið fengið það hjá öðrum.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og
svo þér gjörið þær ráðstafanir, sem með þarf, að stjórnarráðið
fellst á uppástungu yðar, og má borga yður, ef þar að kemur,
allt að 1000 rd. úr jarðabókarsjóðnum af því fé, sem nefnt er í
téðri gr. fjárhagsáætlunarinnar, með þeim kjörum, sem getið er,
og væntum vér, ef svo ber undir, að fá skýrslu frá yður um þetta.
58. Bréf dómsmálastjórnarinnar til amtmannsins yfir
norður- og austurumdæminu, um aðgjörð áFIat-
eyjar kirkju.
Með bréfi 12. desbr. f. á. hefir amtið sent liingað eptirrit,
útlagt á dönsku, af visitazíugjörð, sem hlutaðeigandi prófastur
heíir haldið 25- ágúst f. á. yfir Flateyjarkirkju, og jafnframt
stungið upp á, að verja megi allt að 50 rd. til að ráða bót á
því, sem prófasti þótti á vanta, þá er hann visiteraði kirkjuna,
og til þess að útvega þá hluti til kirkjunnar, sem mest er þörf
á, og að taka megi til þessa fé það, sem kirkjan á nú í peningum
eða kann að eignast; samkvæmt kirkjureikningnum, sem fylgdi,
átti hún í fyrra í fardögum 40 rd. 12 sk. í sjóði, en nú mun
það vera orðið 46 rd.
1871.
28. júní.
28. júm'.