Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 222
214
DM LÆKKUN JARÐAGJALDA.
1871.
10. ágúst.
11. ágúst.
afgjaldið af Kálfárvöllum um 2 vættir og 10 fiska (4 rd. 85 sk.)
Ennfremur liafið þer leyft, að lnísin á hjáleigunni Kálfárvallakoti
verði lögð niður, og timbrið selt við opinbert uppboð, eptir að
leiguliðinu hafi skilað húsunum í fullu standi.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og
svo þér birtið það, aö stjórnarráðið fellst á þessar ráðstafanir, en
stjórnarráðið býst samt við, að afgjaldið verði hækkað aptur við
næsta leigumála.
80. Bréf kirkju- og kennslustjórnarinnar til stiptsyíir-
valdanna á íslandi, uni raka í bókhlööu hins lærða
skóla í Reykjavík.
Um leið og þér, lierra stiptamtmaður og þér, háæruverðugi
lierra, senduð hingað með bréfi 6. júní þ. á. skýrslu frá skóla-
meistaranum við hinn læröa skóla í Reykjavík um það, að svo
mikill raki sé í hinu nýja bókhlöðuhúsi skólaus, að hætt sé við,
að bækurnar skemmist þar, hafið þér borið undir stjórnarráðið,
livort ekki sé ástæða til, að leita álits timbursmiðs Klentz, sem
stóð fyrir byggingu þessa húss, eða annara manna, sem vit hafa
á slíkum efiium, um það, hvernig bezt verði ráðin bót á þessu.
Eptir að stjórnarráðið útaf þessu hefir fengið álit timbursmiðs
Klentz, hefir Iiann í bréfi því, sem vér látum fylgja með, stungið
uppá, að búin verði til hitavél í liúsiuu á þeim stað, sem til-
tekinn er á meðfylgjanda uppdrætti, og hefir liann samið áætlun
um kostnaðinn við þetta, sem vér einnig sendum yður, en til
bráðabirgða hefir hann stungið uppá, að í vetur verði settur ofn
upp á þann hátt, sem hann nákvæmar skýrir frá í bréfi sínu.
Um leið og stjórnarráðið lætur það vera á yðar valdi, að
gjöra þær ráðstafanir, sem timbursmiður Klentz hefir stungið
uppá til bráðabirgða, mælumst vér til, áður en lengra verður
haldið út í málið, að þér segið álit yðar um hitavél í bókhlöðu-