Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 254
246
OM EPTIRLAUN.
1872.
27. janúar.
Ástæður fyrir tilskipun þessari1.
Fyrir alþingi yar lagt frumvarp til tilskipunar um eptirlaun
handa öðrum yfirdómara og jústizsekretera í hinurn konunglega
íslenzka landsyflrrétti, Benidikt Svcinssyni, sem hefir verið vikið
frá embætti. Jetta frumvarp, sem var samhljóða tilskipun til
bráðabirgða, sem út kom 1. apríl 1871", ræddi síðan þingið á
lögskipaðan hátt, og skýrði frá áliti sínu um það, eins og hér
skal sagt.
Nefndin, sem þingið fól á hendur að meðhöndla þetta mál,
þóttist eigi geta hjá því komizt, að afla sér fleiri upplýsinga um
það, en þeirra, sem fólgnar væri í ástæðum frumvarpsins; liún
skoraði þá á hlutaðeiganda sjálfan að láta þinginu í té allar þær
upplýsingar, er hann mætti veita málinu til skýringar. Eptir
þeim upplýsingum, sem með þessu móti fengust, virtist þinginu
mætti heimfæra kærur þær, sem færðar höfðu verið gegn yfir-
dómara Benidikt Sveinssyni, undir þrjú höfuðatriði:
1. Áð hann hefði eigi hlýðnazt skipun stiptamtsins að flytja
bústað sinn frá Elliðavatni að Eeykjavík í fardögum 1870-
2. Að liann ætti að hafa valdið ýmsri óreglu við yfirréttinn,
svo sem með því, að hann hefði látið sig vanta í réttinum á til-
teknum tímum, án þess að tilkynna forföll sín í tækan tíma, og
að bókfærsla hans sem dómsskrifara í réttinum hefði ekki verið í
réttu lagi.
3. Að hann ætti að hafa með hegðun sinni utan réttarins
rýrt mannorð sitt og traustið á sér sem dómara, og allt háttalag
hans ætti að hafa komið í bága við hina ábyrgðarmiklu og mik-
ilsvarðandi stöðu hans.
Með því það nú yrði að vera komið undir saknæmi þessara
kæru-atriða, hve há, eða hvort nokkur, eptirlaun yfirdómari Beni-
dikt Sveinsson ætti að fá, gat þingið þess um hið fyrsta kæni-
atriði, að með konungsbréfi 14. maí 1808 væri dómendum í
landsyfirréttinum veitt leyfi til fyrst um sinn að búa fyrir utan
') Tibindi frá alþingi 1871, I., 7, 13, 15, 832—834, 859-863 og
911; II., 153—157, 488—507, 527—528 og 616—619.
2) Tíbindi um stjórnarmálefni íslands III., 166.