Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 280
272
UM SPÍTALAGJALD.
1872. þilskip, opin skip, báta og byttur við ísland, og þar er lagður á
febrúar. land, eptir þeim reglum, er nú skal sagt:
a) af allskonar fiski, sem er verkaður sem saltfiskur, skal af
hverju tólfræðu hundraði goldin i!<i alin;
b) af allskonar fiski, sem er hertur, eða sem er seldur óverk-
aður, skal af hverju tólfræðu hundraði goldin '/4 alin;
c) af fiski, sem saltaður er í tunnur, skal goldin Ve alin af
hverri tunnu;
d) af hverri tunnu hákarlslýsis eður jafngildi hennar af há-
karlslifur skal greidd 1 alin, en af hákarlinum sjálfum
greiðist ekkert gjald.
Gjald það, sem um er rædt undir stafliðunum- a, b og c,
skal greidt, hvort sem fiskurinn er ætlaður til neyzlu í landinu
sjálfu eður til útflutnings.
Af því, sem ekki nemur Iiálfu hundraði eða hálfri tunnu,
skal ekkert gjald greidt, en af hálfu hundraði eða hálfri tunnu
og þar fram yfir skal goldið einsog af fullu liundraði eða lieiili
tunnu.
2. grein.
Gjaldið rennur í læknasjóðinn íslenzka og skal í fyrsta skipti
heimtað saman eptir þessari tilskipun fyrir tímabilið frá 12. maím.
til 31. desembrm. 1872, 0g síðan fyrir hvert ár frá 1. janúarm.
til 31. desembrm.; skal það goldið í peningum eptir meðalverði
á hvoru um sig, fiski og Iýsi, í verðlagsskrá hvers árs.
3. grein.
Eigendur báta og skipa skulu greiða spítalagjaldið af hendi,
ef þeir eru innanhrepps, ella formenn. Eigi fleiri skip saman,
og sé eigi allir innanhrepps, þá skulu þeir greiða allt gjaldið,
sem innanhrepps eru. Ef foijnaðurinn á að greiða gjaldið, og sé
hann utansveitarmaður, skal hann hafa greidt hreppstjóra eða
lögreglustjóra gjaldið, áður hann fer burtu úr hreppnum. Sé
það gjört áður en hin nýja verðlagsskrá hefir öðlazt gildi, skal
gjaldið greidt eptir verðlagsskrá þeirri, sem þá er í gildi. Fari
hann burt úr hreppnum án þess að greiða gjaldið, skal hann
sæta 5—20 rd. sekt, og rennur hún í læknasjóðinn.
Greiðandi hefir rétt til endurgjalds af öllum þeim, sem hlut