Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 294
286 UM KENNSLU HEYRNAR- 00 MÁLLEYSINGJA.
1872.
26. febvúar.
21. Tilskipun handa íslandi, um kennslu heyrnar- og
málleysingja, og’ fl. (á íslenzku og Dönsku).
Vér Christian hinn Níundi, o. s. frv. Gjöruin
kunnugt: Eptir að Vér höfum meðtekið þegnlegt álitsskjal
Vors. trúa alþingis um frumvarp, sein fyrir það hefir verið lagt,
til opins bréfs handa íslandi um kennslu iieyrnar- og málleys-
ingja, bjóðum Vér og skipum fyrir á þessa leið:
1. grein.
Foreldrar heyrnar- og mállausra barna og aðrir, sem ber að
annast um uppfóstur þeirra og kennslu, skulu vera skyldir til að
sjá um, að öllum slíkum börnum, þá er þau eru orðin 10—14
ára, og ef þau eru hæf til náms, verði komið annaðhvort til
kennslu þeirrar fyrir Iieyrnar- og málleysingja, sem stofnuð er á
íslandi og stiptsyíirvöldin hafa umsjón með, einsog með þarf,
eöa á hinn konunglega lieyrnar- og málleysingja skóla í Kaup-
mannaliöfn, nema því að eins þeir sanni, að séð verði um kennslu
þessara barna á annan liátt, sem stiptsyfirvöldin álíta nægilega
tryggan. Ef sérstaklegar kringumstæður mæla með því, skal
stiptsyfirvöldunum heimilt að gjöra undantekniugu frá reglunni að
framan uin aldur heyrnar- og málleysingja, er þeim skuli komiö
til kennslu.
2. grein.
Kostnaðinn við keunslu og útbúnað barnanna og ferð þeirra
til kennslustofnunarinnar skal greiða úr jafnaðarsjóði þess amts,
er í hlut á, að ]iví leyti sem barnið sjálft eða þeir, sem standa
eiga straum af því, geta ekki borgað.
3. greiu.
þegar heyrnar- og málleysingjar hafa lokið náminu, og for-
eldrar þeirra eða aðrir vandamenn eru dánir, eða eru ekki færir
um að annast þá sern skyldi, skal presti og hreppstjóra í þeirri
sveit, som þeir eiga heima í, vera skylt, að sjá um, að þeim
verði komið fyrir á þá staði, þar sem þeir geti haft sem bezt
not af því, er þeir liafa numiö. Verði stoínaðar hreppsnefndir,
skal þetta falið þeim á hendur í stað hreppstjóranna.
Eptir þessu eiga allir hlutaðeigendur sér þegnlega að hegða.