Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 328
r
320 DM STYRK HANDA JARÐYRKJUMANNI.
I872. jafnframt hefir landbústjórnarfélagið, sem byggir á því, að Olafur
27. febrúar. Sveinsson muni, ef til vill, eptirleiðis geta tekið að sér störf
þau, sem téður Jörgensen liefir haft á hendi, borið upp þá
spurningu, hvort dómsmálastjórnin sé fús til, ef félagið borgi
helminginn fyrir verkfæri þau, sem Ólafur Sveinsson hefir sókt
um, — en kaupverðið mun verða alls 50 rd., — að borga hinn
helminginn af sjóði íslands, og hefir félagið bætt því við, að það
vili gangast undir, að borga allan kostnaðinn til bráðabirgða
fyrirfram.
TJtaf þessu gefst félaginu til vitundar, því til leiðbeiningar,
að dómsmálastjórnin eptir kringumstæðunum skal vera fús á að
greiða helminginn af því fé, sem með þarf í þessu skyni.
Fyigiskjölin sendum vér félaginu aptur með þessu bréfi.
28. febrúar. 26. Bréf dómsmálaráðherrans til stiptamtmanns Hilmars
Finsens, um það, að liann takist ferð á hendur
til Kaupmannahafnar.
Með tilskipun um póstmál á íslandi, sem út kom 26. þ. m.,
er svo fyrir mælt, að stiptamtmaður skuli hafa á hendi stjórn
þessara póstmála þangað til settur verður landshöfðingi á íslandi.
Útaf þessu verð eg að álíta það hagfellt, að þér dvelið hér
nokkurn tíma í Kaupmannahofn, áður en téð tilskipun öðlast gildi,
til þess að kynna yður svo nákvæmlega sem unnt er störf þau,
sem póststjórninni eru samfara.
Eg skal þessvegna mælast til þess, að þér, herra stiptamt-
maður, sjáið um, að emhætti því, sem yður er trúað fyrir, verði
stjórnaö tilhlýðilega í fjærvist yðar, ogaðþér takist ferð á hendur hing-
að með póstgufuskipinu, er það fer hingað apturfra íslandi í fyrstu
ferð sinni á þessu ári, ef þér eigið hægt með það, en 'að öðrum
kosti með þeirri ferð skipsins, sem eptir ferða-áætluninni byrjar
frá Eeykjavík 17. júní, og skal þess jafnframt getið, að kostn-
aðurinn við ferð yðar hingaö og' dvöl hér mun verða yður endur-
goldinn eptir sömu reglum og áður.