Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 342
334
UM DÝRALÆKNI í SOÐURAMTINU.
187a' 44. Bréf dómsmálastjóinarinnar til stiptamtmannsins
15. aprii. yfir íslandi, um dýralækni í suðuramtinu.
í bréfi, dagsettu 18. f. m., hafið þér, herra stiptamtmaður,
tekið það fram, að það væri æskilegt, að hafa Snorra Jónsson
sem dýralækni fyrir suðuramtið enn um eitt ár, talið frá 1.
maím. þ. á., til þess að nota kunnáttu hans og aðstoð sér í
lagi gegn fjárkláðanum, sem hefir gjört vart við sig í ýmsum
hreppum í Gullbringu- og Kjósarsýslu og í Árnessýslu. Með því
nú jafnaðarsjóður suðuramtsins eigi hefir næg efni til að greiða
kostnaðinn, sem rísa mundi af þessu, og sem ætlazt er á að
verði 600 rd., án tillags frá hinu opinbera, hafið þér stungið
upp á, að stjórnarráðið eins og í fyrra veiti 300 rd. í þessu
skyni, af því fé, sem ákveðið er til óvissra útgjalda fyrir ís-
land á reikningsárinu 1872—73, gegn því, að jafnmiklu verði
varið til þessa úr jafnaðarsjóðnum.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar, að
stjórnarráðið fellst á uppástungu yðar, og skal því við bætt, að
vér í dag höfum skrifað landfógeta um, að yður verði borgaðir
300 rd., 25 rd. á hverjum mánuði, úr jarðabókarsjóðnum af því
fé, sem tilfært er í áætlun um tekjur og útgjöld íslands á
reikningsárinu 1872—73, 9. grein.
15. apríi. 45. Bréf dómsmálastjórnarinnar til stiptamtmannsins
yfir íslandi, um bygging hegningarhúss í Reykjavík.
Um leið og vér tilkynnum yður, herra stiptamtmaður, yður
til leiðbeiningar fyrst um sinn, að dómsmálastjórnin hefir gefið
timburmeistara IClentz hér úr borginni loforð fyrir því, að hann
skuli byggja iiegningarhúsið o. s. frv. í Keykjavík samkvæmt
áætlun þeirri, sem hann hefir samið og sent hingað, fyrir
22,270 rd., skal þess getið, at timburmeistari IClentz hefir skýrt
frá, að hann sendi erfiðismenn til Keykjavíkur með póstgufuskip-
inu, sem fari héðan á morgun; mælumst vér því til, aö þér vísið