Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 350
342
DM BÆJARSTJÓRN í REYKJAVÍK.
1872. lengri tíma, en að þau verði borguð aptur af tekjum pess árs,
20- aprii. sem fer í liönd, né heldur endurnýja slík lán eða fresta borgunar-
tímanum. Sömuleiðis lítheimtist samþykki landshöfðingja til þess,
að kaupstaðurinn geti gengið í samfélag við aðrar sveitir um
þinghús, fangelsi, sjúkrahús og aðrar þessháttar stofnanir. Eptir
uppástungu bæjarstjórnarinnar getur landshöfðingi samþykkt breyt-
ingar á reglum þeim, sem farið er eptir, þegar jafnað er niður
útgjöldum í þaríir bæjarins, ef þau verða ekki borguð með öðrum
tekjum.
20- grein.
Niðurjöfnunarnefnd skal jafna niður gjöldum eptir efnum og
ástandi; tala nefndarmanna skal ákveðin í samþykktinni; skal
standa á stöku, og mega nefndarmenn eigi vera færri en flmm, né
fleiri en níu. Með tilliti til kosningar skal nefndarmönnum skipt
í tvo hluti, annan stærri, og annan minni; meiri hlutann
kjósa allir bæjarbúar, er kosningarrétt hafa samkvæmt 5. gr.,
minni hlutann þeir, er greiða mest í skatt. Niðurjöfnunarnefnd-
in skal kosin í ágústmánuði. Að því er snertir rétt til þess að
verða kosinn, og um það, hvernig haga skuli kosningum, og fl.,
gilda hinar sömu reglur, og um kosning bæjarfulltrúa. Nefndar-
menn þessir skulu gegna starfa sínum í sex ár, og fer minni hlut-
inn fyrst frá, og þar á eptir til skiptis. Um ályktanir niður-
jöfnunarnefndarinnar og atkvæðagreiðslu hennar skal farið eptir
því, sem fyrir er mælt í 11. grein, og kýs nefndin sér sjálf odd-
vita úr sínurn flokki.
21. grein.
Að þeim undanteknum, sem eru í bæjarstjórninni, getur eng-
inn, sein er skyldur að taka á móti kosningu í liana, skorazt
undan að taka á móti kosningu í niðurjöfnunarnefndina, nema
hann að minnsta kosti í þrjú ár samfleytt hafl haft þetta starf á
hendi. Skal hann þá undanþeginn starfa þessum í jafnlangan
tíma, og hann heflr verið við.
22. grein.
Niðurjöfnun eptir efnum og ástandi nær til allra, sem
liafa fast aðsetur í bænum. feir skulu greiða þar fullt gjald
eptir öllum efnahag sínum, nema þeir á gjaldárinu hafi líka haft