Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 351
UM RÆJARSTJÓRN í REYKJAVÍK.
343
fast aðsetur annarsstaðar; se svo, þá má eigi leggja hærra gjald 1872.
á ])á, en samsvari þeim tíma, er þeir hafl haft aðsetur í kaup- 20- apríi.
staðnum. Ef einhver hefir liaft fast aðsetur í bænum skemmri
tíma, en fjóra mánuði, þá kemur það ekki til greina.
Landshöfðinginn skal úr því skera, hvort erlendir menn, sem
ekki stunda neina þorgaralega atvinnu, en hafa aðsetur í kaup-
staðnum, sé gjaldskyldir.
23- grein.
Niðurjöfnunarnefndin jafnar niður hinum árlegu gjöldum í
nóvbrmánuði. Niðurjöfnunarskráin skal, þegar búið er að bæta
við hana annari skrá yfir það, sem liver gjaldandi að öðru leyti
skal greiða í skatt til bæjarins, liggja öllum til sýnis í 14 daga
fyrir árs lok annaðhvort í bæjarþingsstofuuni eða á öðrum hent-
ugum stað, eptir að búið er að birta það opinberlega. Bæjar-
stjórnin má ákveða, að aukaniðurjöfnun skuli fram fara í síðari
hluta júnímán. hvert ár, og skulu skattar þá lagðir á þá, sem
flutt hafa sig til kaupstaðarins, eptir að aðalniðurjöfnunin fór
fram, og skyldir eru að greiða skatt samkvæmt 22. grein. Jiessi
aukaniðurjöfnun skal liggja öllum til sýnis í 14 daga, einsog sagt
er að framan.
Kærur gegn hinni framlögðu niðurjöfnun skulu innan 14 daga
frá því niðurjöfnunarskráin hefir verið til sýnis sendar skriflega
niðurjöfnunarnefndinni. Innan 14 daga þar á eptir skal nefnd
þessi skriflega tilkynna kærandanum, hvort nokkur, og þá hver
breyting orðið geti á niðurjöfnuninni. Ályktan þá, sem niðurjöfn-
unarnefndin hefir gjört, má svo innan 14 daga þar á eptir bera
upp fyrir bæjarstjórninni, sem leggur úrskurð sinn á málið innan
hálfs mánaðar. Mótmæli, sem koma fram eptir hinn ákveðna
tíma, verða eigi tekin til greina.
Sérhverjum, sem settur er í bæjargjald, er heimilt að kvarta
yfir skattgjaldi því, sem lagt hefir verið, ekki að eins á hann
sjálfan, heldur einnig á aðra, sem á niðurjöfnunarskránni standa,
einsog líka yfir því, ef einhverjum er sleppt úr henni. Ef kvart-
að er yfir gjaldi annars manns, eða yfir því, að einhverjum sé
sleppt, skal þeim manni gefinn kostur á, að segja álit sitt þar