Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 353
UM BÆJARSTJÓRN í REYKJAVÍK.
345
26. grein.
Bæjarstjórnin og serstaklega bæjarfógeti skulu liafa nákvæm-
ar gætur á fjárstjórn kaupstaðarins, og því sjá um, að skattar
og aðrar tekjur sé rétt heimtar og í tækan tíma, og teknar lög-
taki, ef þess parf við; ennfremur gæta þess, að geymt sé og
eptir atvikum ávaxtað fé bæjarins, þangað til á því þarf að halda
til þess að borga útgjöld hans.
Bæjarstjórnin skal hafa ábyrgð á innstæðum, skuldabréfum
og öðrum eignum kaupstaðarins.
27. grein.
Fyrii- opinber undirboðsþing, sem bærinn lætur halda á vega-
vinnu, aðgjörðum á skólum og fátækrahúsum, á því, að útvega
verknað og varning í þarfir bæjarins , og öðru þesskonar, skal
ekki goldið neitt.
28. grein.
Bæjarstjórnin er skyld að útvega og láta stjórninni í té
skýrslur þær, er hún kann að æskja, svo sem um fólkstal, skepnu-
hald, atvinnuvegi og annað ástand kaupstaðarins.
29. grein.
Ársreikning kaupstaðarins ber að semja, sem frekast unnt er,
samkvæmt fyrirmynd þeirri, sem sett er fyrir áætluninni, og
skal gjöra reikning þenna innan loka febrúarmánaðar á því reikn-
ingsári, sem í hönd fer. Skal reikning þenna síðan leggja fram
til sýnis í 14 daga á þingstofu bæjarins, eða öðrum hentugum
opinberum stað. þar á eptir skulu tveir endurskoðunarmeun yfir-
líta vandlega reikningiun ásamt fylgiskjölum. Menu þessa skal
venjulega kjósa fyrir sex ár af öllum staðarbúum, sem kosningarrétt
hafa, og á þann liátt, sem fyrir skipað er um kosningar bæjar-
fulltrúa. Bæjarstjórnin er skyld að láta endurskoðurum í té allar
þær skýrslur, er við þurfa, til þess að geta dæmt um tekju- og
útgjaldagreinir reikningsins. Eptir að reikningshaldara heflr verið
skýrt frá athugasemdum endurskoðunarmannanna, svo hann geti
svarað og gjört grein fyrir þeim, skal bæjarstjórnin leggja úrskurð
sinn á athugasemdir þær, er gjörðar hafa verið, og veita hlutað-
eiganda kvittan; þó má enginn taka þátt í úrskurði á athuga-
semd, sem snertir þær framkvæmdir, er hann liefir tekið þátt í
1872.
26. febi'úar.