Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 354
346
DM BÆJARSTJÓRN í REYKJAVÍK.
1872. sem kvacldur í fasta nefnd eða fyrir þá sök, að lionum heíir ser-
20- april. stakleg'a verið falið eittlivert starf á hendur í þarflr bæjarins.
Vili reikningshaldari eða aðrir, er hlut eiga að máli, ekki viður-
kenna, að úrskurður sá, sem fallinn er, sé réttur, má hann, ef
úrskurðurinn leggur honum á herðar peuinga ábyrgð, heimta, að
málið gangi til dóms og laga.
Aðalreikning kaupstaðarins skai, eptir að hann er úrskurðaður,
auglýsa á prenti innan tveggja mánaða.
30. grein.
Innan 30. septembermán. ár hvert skal senda landshöfðingja
reikning fyrir hið liðna reikningsár, með athugasemdum endur-
skoðunarmanna og úrskurðum á jieim. Komist landshöfðingi að
því, þá er hann yíirfer reikninginn eða á annan hátt, að bæjar-
stjórnin hafi við haft ólögmæt útgjöld, neitað að greiða þau gjöld,
sein iöglega hvíla á kaupstaðnum, eða á annan hátt beitt rang-
lega valdi sínu, skal hann gjöra þær ráðstafanir, er við þarf, og,
ef nauðsyn ber til, getur hann meö lögsókn komið ábyrgð á hend-
ur þeim bæjarfulltrúum, er hafa átt þátt í þessum ályktunum.
31. grein.
Bæjarstjórnin, sem nú er, skal samþykkja frumvarp til sam-
þykktar þeirrar fyrir kaupstaðinn, er getið er um hér að framan
í 3., 4., 13., 20. og 25-gr., og skal sendahana landshöfðingja til'
staðfestingar.
Auk þess, sem fyrir er mælt í nefndum greinum, skal í sam-
þykktinni sagt fyrir um tölu embættis- og sýslunarmanna bæjarins,
veiting embættanna og lausn frá þeim, laun og störf embættis-
manna, og skal samþykktin ennfremur hafa inni að halda nákvæm-
ari reglur um, hvernig semja eigi hina árlegu áætlun yfir tekjur
og útgjöld kaupstaðarius, um tilhögun á fjárstjórn og reikningum
kaupstaðarins, og um endurskoðun og úrskurð reikningsins. Enn-
fremur má í téðri samþykkt setja nákvæmari reglur um niður-
jöfnunina eptir efnum og ástandi, og yfirhöfuð um sérhvert atriði
í bæjarstjórninni, sem þykir æskilegt að tilhaga nákvæmar sam-
kvæmt grundvallarreglum þeim, sem tilskipun þessi hefir inni að
halda.