Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 365
AOGLÝSING UM PÓSTMAl.
357
skuli til brefhirðing-armanna, þegar þær sýslanir eru lausar, og
heíir iieimild til að veita bréfhirðingarmanni ferðaleyii um stuttan
tíma, í mesta lagi um 14 daga, þó svo, að séð verði um, að
störfum þess, sem í lilut á, sé gegnt svo allt sé í reglu, ámeðan
hann er fjærverandi.
Póstafgreiðslumaðurinn hefir að eins viðskipti við yfirstjórn-
ina fyrir milligöngu póstmeistarans; fyrir því skal hann senda
póstmeistara öll bænarskjöl, skýrslur, uppástungur o. s. frv., sem
frá honum eiga að fara til landshöfðingjans um póstmál. Fyrir
póstmeistara skal hann bera upp uppástungur um þær breytiugar
á póstmálum, sem honum virðast hagfelldar til þess að efla og
bæta þau, og sömuleiðis skal hann skýra honum frá því, þegar
póstar eða bréfhirðingarmenn gjöra sig seka í skeytingarleysi og
óreglu, sem gæti orðið til skaða fyrir póststörfin.
Póstafgreiðslumaðurinn er að því leyti, sem snertir störf hans
yfir höfuð, undirgefinn póstmeistaranum, og sér í lagi í öllum
þeim málum, sem hann ekki hefir neina skýra fyrirsögn um eða
leiðarvísi í erindisbréfi því, sem yfirstjórnin hefir fengið honum,
og skal hann mótþróalaust hlýða boði póstmeistarans í þessu til-
liti. Ef honurn finnst það vera miöur hagfellt, getur hann að
vísu mótmælt því, en samt skal hann fyrst um sinn framkvæma
það, sem honum hefir verið skipað, og ef honum þykir á sig
hallað með ákvörðun þeirri, sem póstmeistarinn síðan gjörir, eða
álíti hann, að það verði póststörfunum til baga, má hann bera
málið undir úrskurð landshöfðingja, en senda skal hann það áleiðis
til póstmeistarans.
Svo opt sem þess verður krafizt, skal hann leggja fram
bækur sínar o. s. frv. til sýnis póstmeistaranum.
Til þess að ferðast innanlands skal hann sækja um leyfi
hjá póstmeistaranum, en hjá landshöfðingja til þess að ferðast
erlendis; þegar á liggur, getur hann samt tekizt ferðina á hendur
þegar í stað, en senda skal liann þá póstmeistara skýrslu um
það, og verður hann, hvernig sem á stendur, sjálfur að sjá um,
að áreiðanlegur maður annist póststörfin á hans ábyrgð, meðan
hann er í fjærvist.
4. grein.
Póstmeistarinn ræður bréfhirðingarmenn eptir uppá-