Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 367
AOGLÝSING CM PÓSTMÁL.
359
1872.
3. maf.
ina, og se aptur brugöið iltaf því, skal póstinum víkja frá þegar
í stað.
Fari póstur ekki af stað á tilteknum tíma, se fargögn eigi í
því standi, sem ákveðið er, liaíi hann án gildrar ástæðu farið
aðra leið, en ákveðin var, baíi hann án nægrar orsakar tafizt á
leiðinni eða dvaliö of lengi á einhverjum stað, eða ef hann yfir-
höfuð hefir brugðið litaf nokkru því, sem um samið er, skal hann
sæta sekt, sem nákvæmar er ákveðin í samningnum. Ef aptur
ámóti náttúruviðburðir eða annað, sem honum verður ekki gefið
að sök, hefír ollað því, að liann hafi orðið að bregða útaf þeim
skilmálum, sem hann hefir gengizt undir í samningnum, verður
hann, til þess að firra sig vítum, að sanna með vottoröi áreiðan-
legs manns, að slíkar orsakir liafi átt ser stað, og skal senda
næsta póstafgreiðslumanni þetta vottorð.
Pósturinn skal hafa meðferðis sendinga-, stundar- og viktar-
seðil, og skal ritað á hann á hverjum póstafgreiðslu- og bréf-
hirðingarstað, sem pósturinn kemur við á,
Sektir þær, sem ákveðnar eru í samningnum, leggur póst-
meistarinn á póstinn; samt má pósturinn skjóta málinu til úr-
skurðar landshöfðingja.
Til þess að láta í bréf, sem menn kunna að vilja koma á
póstinn, þegar hann or á leiðinni, skal haun hafa meðferðis tösku
með pósteinkennismerki, og skal opna töskuna á hverjum póstaf-
greiðslu- og bréfhirðiugarstað, sem Iiann kemur við á. Téð póst-
einkennismerki skal pósturinn hafa til að sýna, hver hann sé.
6- grein,
Sendingar skal ílytja:
a) í kössum, sem til þess eru lagaðir, milli póstafgreiðslu-
staðanna innbyrðis og milli þeirra og póststofunnar í Eeykja-
vík; á kössunum skulu vera lok, og hafa afgreiðslumenn-
irnir einir lyklana að þeim;
b) í töskum milli bréfhirðingarstaðanna og liinna tveggja næstu
póstafgreiöslustaða (eða póststofunnar í Reykjavík); á tösk-
unum skal vera læsing, og skulu póstarnir einir og hlutað-
eigandi póstafgreiðslumenn hafa lykilinu að þeim.
Auk þess skal pósturinn hafa meðferðis tösku undir laus