Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 371
AUGLÝSING UM PÓSTMÁL.
363
Breytingar á og viðbæti við auglýsinguna skal birta á þann
hátt, sem hagfeíldastur er við slíkar ákvarðanir, einkum í frétta-
blöðum og með því að leggja það fram á öllum pósthúsum; og eins er urn
það, þegar stofnaðir verða eðalagðirniður reglulegirpóstar, eða mikil-
vægar breytingar gjörðar á þeim. færákvarðanirum notkun pósta, sem
póststjórnin lætur á pósthúsin, skulu samt hafa fullt gildi, þótt
eigi sé þær enn birtar, ef þær verða sýndar þeim, er krefjast þess.
það er skj'lda póstþjóna, þegar þess er krafizt, að svo miklu
leyti sem unnt er að segja mönnum til eða leiðbeina mönnum um
notkun póstanna, ef því verður við lcomið, án þess að raska eða
seinka um of fyrir hinum öðrum póststörfum.
þegar tilgreindur er burtfarartími pósta, þá er það svo að
skilja, að sá tími sé ákveðinn, er þeir fara af stað í fyrsta
lagi, þarsem póststjórnin áskilur sér, að láta póstinn fara seinna,
til þess að bíða eptiröðrum póstum, eins og líka má við því búast, að
náttúruviðburðir eða því um líkt geti seinkað fyrir honum. Á þeim
pósthúsum, sem eru á leiðinni, fer burtfarartíminn eptir því hvenær
póstarnir koma þangað, með því dvöl þeirra þar verður að vera
svo skammvinn sem unnt er.
Póstafgreiðslumenn og bréfhirðingarmenn eru ekki skyldir til
að hafa ákveðinn skrifstofutíma, en þeir skulu sýna almenningi
greiðvikni svo sem unnt er, bæöi með því að taka við póstsend-
ingum, sem þeim eru fengnar til flutnings með póstum, og með
því að afhenda hlutaðeigendum þær sendingar, sem komnar eru
með póstinum.
10. grein.
Póststjórnin tekst að eins á hendur að koma póstsendingum
á framfæri til þeirra pósthúsa, er vísað er til, og afhenda þær
þar þeim, som við eiga að taka, en þeir skulu sjálflr sjá um, að
sendingarnar verði sóktar. Að svo miklu leyti því verður við
komið án kostnaðar fyrir póststjórnina, skulu póstþjónar samt sem
áður segja þeim, sem við sendingunum eiga að taka, til um það, að
póstsendingar sé komnar til þeirra; sömuleiðis skulu þeir, ef þeir, sem
við slikum sendingum eiga að taba, hafa beðið þá um, að sjáum, að sér
verði skilað sendingunum uppá eigin kostnað, gjöra þær ráðstaf-
anir sem með þarf í þessu skyni.
1872.
3. mai.