Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 376
AUGLÝSING UM PÓSTMÁL.
að eigi veröi komizt að innihaldinu, án þess ínnsiglið
eða umslagiö skaddist.
c. fegar sendir eru bréfpeningar eða fémætir pappírar sem
bögglar, skal fyrst sveipa um þá sterkum pappír, sem
á allar iiliðar lykur fast um innihaldið. Síðan skal láta
um það umbúðarpappír eða aðrar jafnsterkar umbúðir,
og reyra böggulinn sterku snæri eða bandi, sem elcki
er Imýtt saman, og skal því brugðið í linút á miðjum
bögglinum á þeirri iilið, sem upp snýr, og þeirri, sem snýr
niður. Á þeirri bliöinni, sem niður snýr, skal hafa
endana svo langa, að sett verði á þá innsigli. þegar
upphæðin er talin á pósthúsinu, skal auk tveggja innsigla
þess, sem sendir, setja tvö póstinnsigli á böggulinn.
d. jþegar sendir eru mótaðir peningar, skal búa um þá í
reglulegum ströng'lum, bögglum eða pokum, eptir því,
sem nú skal sagt:
í hverjum böggli eða ströngli má ekki vera meir
af mótuðum peningum, en að það vegi 16 pund. Fyrst
slcal lilaöa peningunum fast saman, sveipa um þá á
alla vegu sterkum pappír og reyra svo um. Umbúð-
irnar um bögglana eða strönglana að utan skulu vera
úr leðri, skinni eða sterku lérepti, sem að minnsta
kosti er vafið tvisvar um, eða vaxdúki; skal brotið sam-
an við endana, og allstaðar saumað fyxir. Auk þess
skal böggullinn eða ströngullinn vera reyrður snæri, sem
ekki or hnýtt saman, og skal því að minnsta kosti á
tveim stöðum vera brugðið í kross; skal festa endana
á snærinu með innsigli þess, sem sendir, við böggulinn,
þar sem brotnir eru saman endarnir á umbúðunum.
Ef póststjórnin telur peningaua, er þeim er skilað, skal
þar að auki láta 2 póstinnsigli á böggulinn.
í hverjum poka má ekki vera meir af mótuðum
peningum, en sem vegur 16 pund. Peningapokarnir
skulu vera úr leðri, skinni eða tvöföldu lérepti, eða hafðir
2 pokar, hver utan um annan á þann liátt, að felling-
arnar á þeim liggi eigi saman. Sérhver felling á pen-
ingapokum skal snúa inn á við; skal vera fast bundiö