Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 393
AOGLÝSING UM PÓSTMÁL. 385
Sendingar þær, sem eptir þeim reglum, sem getið er að
framan, ekki hefir orðið komið til þess, sem vísað er til, eða þess,
sem sendi þær, skal geyma undir innsigli landshöfðingja á póststof-
unni í Reykjavík, og skulu þær liggja þar, svo þær verði sóktar
samlcvæmt hinum almennu reglum um afhending póstsendinga.
þeim sendingum, sem loksins verða eptir og eigi verður
komiö til skila , og sem ekki verða seldar póstsjóði í hag sam-
kvæmt 15. gr. í tilsk. um póstmál, skal eyða, þegar þær hafa
legið þar að minnsta kosti í 6 mánuöi: skal þelta gjört einu-
sinni á ári hverju með umsjón þeirra manna, sem til þessa eru
settir og nefndir eru að framan.
Póstþjónar skuiu sjá um, að óviðkomandi menn fái ekki
vitneskju um, frá liverjum eða til hverra póstsendingar komi eða
fari af stað, nema það eingöngu sé til þess að greiða fyrir flutn-
ingi þeirra, og skulu þeir því varðveita póstsendingar þannig, að
enginn óviðkomandi komist að þeim.
22 grein.
þegar leysa skal úr því spursmáli, hvort póststjórnin sé
skyld til að greiða skaðabætur, og um stærð þeirra, skal einkum
til greina tekið, að það sé nægilega sannað:
a. a ð uokkur, sem til þess heflr lieimild, hafl tekið til flutnings
fyrir höud póststjórnarinnar sendingu, sem glatazt hefir og
sem ekki hefir verið rituð í bækur póststjórnarinnar;
b. þegar vart verður við, að nokkuð vantar í peningasendingu
sem póststjórnin hefir talið, er sendingunni var skilað til
flutnings,
að sannað verði, hvað vanti, í viðurvist þess póst-
þjóns, sem afhenti sendinguna;
c. þegar vart verður við, að nokkuð vanti í peningasendingu,
sem póststjórnin eigi heflr talið í, er sendingunni var skilað
til flutnings,
að hið ytra ásigkomulag sendingarinnar sé raunsakað
í augsýn þess póstþjóns, som afhenti hana, og að það með
því verði sannað, livort umslagið, hinar ytri umbúðir eða
innsiglin hafl verið skemmd, og með liverju móti, og
að búiö hafl verið að öllu leyti um innihaldiö og
26*
1872-
3. maí.