Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 408
400
TILSKIPUN DM SVEITASTJÓRN.
1872. því, sem samkvæmt tilsldpun 15. marz 1861 hvílir á hrepps-
4. maí. sjóðnum, skal nefndinjafna niður, ogskalþaðgoldið til sýslumannsins.
Hið sama er og um gjald það, sem fyrir er mælt um í 40.
grein þessarar tilskipunar.
17. grein.
Hreppsnefndin skal takast á hendur skyldur þær, sem hvílt
hafa á hreppstjórum, að sjá um notkun afrétta, fjallskil, fjár-
heimtur og ráðstafanir til að eyða refum, og jafna niður gjöldum,
sem af því leiðir. Fela má nefndin einum nefndarmanna á
hendur að framkvæma það, sem að þessu lýtur.
18. grein.
Hreppsuefndin skal hafa umsjón um þinghús hreppsins og
aðrar fasteignir, sem hann á eða heflr not af (t. d. kristfjárjarðir),
og sjá um, að þeim sé haldið í tilhlýðilegu standi. Ef meiri
kostnaður útheimtist til þessa, en svo, að hann geti borgast
með hinni venjulegu árlegu niðurjöfnun, skal nefndin útvega sam-
þykki sýslunefndarinnar til þess.
19. grein.
Hreppsnefndin skal á ári hverju gjöra áætlun um allar tekjur
og útgjöld hreppsins, og að því leyti fátækratíundin og aðrar tekjur
hreppsins hrökkva ekki fyrir útgjöldum, jafna niður því, sem
á vantar, á alla hreppsbúa eptir efnum og ástandi. Aætlunina skal
semja eptir fyrirmynd, sem sýslunefndin segir fyrir um —■ en ífyrsta
skipti eptir fyrirmyud til bráðabirgða, sem amtmaður býr til, —
og skal hún ásamt niðurjöfnunarskránni liggja á hentugum stað,
sem birtur hefir verið fyrirfram á venjulegan hátt, hreppsbúum
til sýnis í 3 vikur á undan reikningsárinu. Um leið og áætlun-
in er lögð fram, skal senda sýslunefndinni eptirrit af henni.
Aðfinningar við niðurjöfnunina skal bera upp skriflega innan 3
vikna frá þeim fresti, sem uefndur var, fyrir oddvita hreppsnefnd-
arinnar, en hann skal á næsta fundi leggja þær fyrir alla nefnd-
ina til úrslita. Sérhverjum er heimilt, sem sveitartillagi er jafnað
niður á, að bera sig upp um það , hvernig skatturinn er lagður
á aðra, og um það, að einhverjum hefir verið sleppt við niður-
jöfnunina.
Aöur eu nefndin leggur úrskurð sinn á noklcra umkvörtun skal