Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Síða 413
TILSKIPUN UM SVEITASTJÓKN.
405
upp skriflega fyrir oddvita nefndarinnar innan 14 daga frá því,
að kosningargjörðinni er lokið. Sýslunefndin skal sömuleiðis
skera tír þeim málum, sem af því rísa, þegar einhver beiðist, að
ganga úr nefndinni, og eins þegar spursmál er um, að víkja ein-
hverjum úr nefndinni. Sé hlutaðeigandi óánægður með úrskurð
nefndarinnar um þessi mál, má hann innan 4 vikna frá því, að
úrskurðurinn er birtur honum, skjóta honum til amtsráðsins, sem
þá leggur endilegan úrskurð á málin.
32. grein.
Nefndarmenn skal kjósa fyrir 6 ár. Af þeim, sem valdir
eru í fyrsta skipti, skal meiri hlutinn, ef á stöku stendur, en
annars helmingurinn ganga úr nefndinni að 3 árum liðnum, og
skal einnig, að því snertir sýslunefndirnar, farið eptir því, sem
fyrir er mælt í 5. grein um það, hvað lengi hreppsnefndarmenn
hafa störf sín á hendi, og um endurkosniugar þeirra (svo og um
það, nær þeir geti skorazt undan að taka við kosningu).
33. grein.
Sýslunefudin skal eiga að minnsta kosti einn fund á ári,
eptir því, sem oddviti ákveður nákvæmar; þaraðauki má hann, ef
honum þykir þörf á því, kveðja til aukafundar, og hann er skyldur
til þess, þegar heimingur nefndarmanna heimtar það.
í fyrsta skipti, sem nefndin á fund, ákveður oddviti, hvar
hann skal haldinn; síðar ályktar nefndin sjálf, hvar fundir skulivera.
í þóknunarskyni fyrir fæðispeninga og í ferðakostnað skulu
nefndarmenn fá 1 rd. fyrir hvern dag frá því að þeir byrja ferð
sína á sýslufund og til þess að þeir eru fcomnir heim aptur, eptir
þeim reikningi, sem hver þeirra þar um gjörir, og sýslumaður
rannsakar, og sem greiðist úr sjóði sýslunnar uppá væntanlegt
samþykki amtsráðsins. Oddvita skal eptir reikningi lians endur-
gjalda það, sem hann hefir borgað til skriffæra, gjörðabóka, undir
bréf, til sendiferða, og fl., og skal öll nefndin ávísa honum féð.
34. grein.
þegar gjöra skal einhverja ályktun, skal atkvæðafjöldi ráða,
þó útheimtist til þessa, að við sé staddur meiri hluti allra nefnd-
armanna. Ef atkvæði eru jöfn, skal atkvæði oddvita ráða. Sér-
hver nefndarmaður hefir heimtingu á, að ágreiningsálit hans verði
1872.
4. maí.