Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Side 422
414
TILSKIPUN UM SVEITASTJÓRN.
1872.
4. maí.
þessu, og getur hann, ef nauðsyn ber til þess, beitt þviug-
unar-sektum, til þess boðum hans verði framfylgt, og þar að
auki komið fram ábyrgð við dómstólana á heudur þeim úr amts-
ráðinu, sem tekið hafa þátt í þessum ályktunum.
55. grein.
Amtsráðið skal sjá um, að stutt ágrip af gjörðum ráðsins,
áætlun sú, sem það hefir samþykkt, og ennfremur ágrip af hinum
árlegu reikningum jafnaðarsjóðsins og þeirra sjóða, sem ráðið hefir
stjórn yfir, verði birt á prenti, og útbýtt meðal allra sýslunefnda.
56. grein.
Amtsráðið getur ekki án samþykkis landshöfðingja tekið
stærri lán fyrir hönd jafnaðarsjóðsins eða fyrir lengri tíma, en að
lánið verði borgað aptur fyrir lok þess árs, sem fer í hönd, ne
heldur ráðið yfir innstæðufé því, sem það hefir umsjón um, eða
selt eða veðsett fasteignir amtsins, eða keypt aðrar fasteignir fyrir
það. Samþykki landshöfðingja útheimtist einnig til þess, að amts-
ráðið geti tekizt á hendur nokkra skuldbinding til langframa, sem
ekki samkvæmt lögum hvílir á amtssveitarfélaginu, og til þess að
leggja á hærra jafnaðarsjóðsgjald að öllu samtöldu, en að það nemi
fjórða hluta framyfir það, sem verið hefir að meðaltali á næstliðn-
uin 8 árum.
57. grein.
Finni forseti, að einhver ályktun amtsráðsins gangi út yfir
vald þess, eða að öðru leyti sé lögum gagnstæð, eða að hún miði
til ráðstöfunar, sem amtiö gétur haft tjón af, eða til þess, að
skorast undan einhverri skyldu, som hvílir á amtssveitarfélaginu,
getur hann um stund numið ályktunina úr gildi, og skal hann þá
tafarlaust skýra landshöfðingja frá þessu, og leggur hann þá úr-
skurð sinn á málið. Endurrit af þessari skýrslu skal jafnframt
leggja fram fyrir amtsráðið.
58. grein.
A þeim tíma, sem er á milli funda amtsráðsins, skal amt-
maður fyrir hönd þess hafa yfirúmsjón þá, sem amtsráðinu ber
yfir sýsluuefndunum. þær skulu því senda amtmanni öll þau mál,
sem leggja skal fyrir amtsráðið, til þess hann geti séð um, að
skýrslur þær, sem með þarf, verði útvegaðar, og einnig til bráða-