Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 439
TILSKIPIJN UM SYEITASTJÓKN.
431
Að því leyti, er snerti breytingu þá, sem alþing hafði stung-
ið uppá við 47. greinar 1. málsgrein (49. gr. tilsk.), þá þótti
betur við eiga, að veita meðlimum amtsráðsins 1 rdl. í fæðispen-
inga fyrir hvern dag, sem þeir vegna amtsráðsfundarins yrði að
vera burtu frá heimili sínu, og ferðakostnað eptir reikningi; orðin:
(leða gegna störfum í amtsráðinu” þóttu vera of óákveðin, og var
þeim því sleppt. Breytingu þeirri, sem alþing hafði stungið uppá
við niðurlag greinarinnar, þótti betur við eiga að koma fyrir
sem grein útaf fyrir sig; skyldi hún vera 51. grein tilskipunarinn-
ar, og vera orðuð á þessa leið:
(lÖll útgjöld við amtsráðið skal greiða úr jafnaðarsjóði
amtsins.”
Stjórnarráðið hafði ekki neitt ámóti því, að 48. grein frum-
varpsins væri felld úr, en í staðinn slcyldi bæta inní nýrri grein,
sem skyldi vera 50. grein tilskipunarinnar; innihald þessarar
greinar er að nokkru leyti samhljóða 47. grein frnmvarpsins, og
var hún orðuð á þessa leið:
(lForsetinn stjórnar umræðum ráðsins, sér um, að þær álykt-
anir, sem gjörðar eru, verði framkvæmdar, .útvegar gjörðabækur
ráðsins og fl., og varðveitir þær ásamt bréfum ráðsins og öðrum
skjölum þess. Ráðið kýs úr sínum flokki skrifara, sem skal rita
í gjörðabókina, og ásamt með forseta sjá um, að ályktanir ráðs-
ins verði birtar almenningi, samkvæmt 55. grein. það, sem fyrir
er mælt í 34. grein um sýslunefndir, skal og gilda um amtsráðið;
þó skal amtsráðið vera fullskipað til þess fullnaðar-ályktan verði
gjörð.”
Stjórnarráðið aðhylltist uppástungu konungsfulltrúa við 49.
greinar (52. gr. tilsk.) 2. tölulið, og var honum samdóma um
40. grein (53. gr. tilsk.), sem var löguð í samhljóðun við breyt-
ingar þær, sem gjörðar voru á frumvarpinu að því leyti, er snerti
tilhögun á amtsráðunum; 51. grein (54. gr. tilsk.) var eptir til-
lögum alþingis sömuleiðis höfð í samhljóðun við þetta, og er grein-
in að eins í einstökum orðum frábrugðin frumvarpi alþingis.
Stjórnarráðið féllst á breytingu þá, sem alþing hafði ráðið til við
52. grein (55. gr. tilsk.), og bætti við nýrri grein (59. gr. tilsk.)
Tíb. um stjórnarmál. III. 29
1872.
4. mai.