Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 455
BM ANDVIRÐI FYRIR STRANDAÐ SKIP. 447
62. Bréf dómsmálastjórnarinnar til amtmannsins yfir .
vesturumdæminu, um andviröi fyrir strandað skip. 2o- ma1,
Með bréfl, dagsettu 1. marzm. þ. á., haflð þér, herra amt-
maður, sent hingað ávísanir bæði uppá verzlunarfélög hér í bænum
og aðalféhirzluna til 4,905 rd. 77 sk„ sem er andvirði þess, sem
seldist á uppboði á hinu strandaða skipi „Elísabet“ frá Kaupmanna-
höfn og farmi þess, og jafnframt um leið og þér getið þess, að
þér sendið dómsmálastjórninni upphæð þessa, sökum þess að þér
hafið eigi getað gjört út um, hvernig skipta ætti fénu milli þeirra,
sem í hlut ætti, hafið þér borið upp þá spurningu, hvernig eptir-
leiðis skuli fara með andvirði þess, sem bjargast af skipstrandi,
að frádregnum kostnaði, þegar svo standi á sem hér, að útgjörðar-
maður skips, sem strandar, sé eigi liinn sami sem eigandi, farms-
ins á skipinu, og þá sérílagi, hvort þér megið borga andvirðið
til útgjörðarmannsins, samkvæmt bréfi stjórnarráðsins 14. septbr.
f. á„ þótt eigandi farmsins liafi tilkall til nokkurs hluta af því.
Jafnframt og vér getum þess, að fyr nefndir 4905 rd. 77 sk.
eru borgaðirhlutaðeigendumsamkvæmt skaðajöfnuði, semsýndurhefir
verið stjórnarráðinu, gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar,
að það þykir réttast, þegar efasamt er, hvernig skipta eigi and-
virði strands milli þeirra, sem í hlut eiga, að borga ekki neitt af
því, fyr en farið verður eptir löglega tilbúnum skaðajöfnuði eða
jafnaðarskrá, og skal þá beinlínis greiða þeim, sem hlut eiga aö
máli, það, sem hver þeirra hefir tilkall til.
63. Konungleg Auglýsing um að konungur sé kominn 25. maí.
heim aptur. (á íslenzku og Dönsku).
Vér Christian hinn Níundi, o.s.frv. Ojörum kunnugt:
EPtir að Vér erum aptur heim komnirúr ferð Vorri til útlanda, kunn-
) Tibindi um stjórnarmálefni íslands, 111., 217.
Tio. um stjórnarmál. III.
30