Tíðindi um stjórnarmálefni Íslands - 01.01.1875, Page 472
464
OM TEKJUR PRESTSEKKJU.
1872.
1. ágúst.
74. Bréf kirkju- og kennslustjórnarinnar til stiptsyfir-
valdanna yfir íslandi, um tilkall prestsekkju til
hlutdeildar í tekjum afbrauði.
Með bréfi, dagsettn 3. júním. þ. á>, hafið þér, herra stipt-
amtmaður og þér, háæruverðugi herra, sent hingað aptur með
áliti yðar skjal nokkurt, þar sem sóknarpresturinn að Laufási,
Björn prófastur Halldórsson, hefir borið undir úrslit stjórnar-
ráðsins þessar spurningar:
1. hvort ekkja prófasts sira Halldórs Björnssonar að Sauða-
nesi eigi tillkall til nokkurs hluta af ágóðanum af prestssetrinu
á fardagaárinu 1870—71, og ef svo sje, þá hve mikill þessi hluti
verði, og
2. eptir hverjum reglum eptirlaunin af ágóðanum afprests«
setrinu skuli talin frá fardögum 1871.
Útaf þessu gefst yður til vitundar, yður til leiðbeiningar og
til þess þér birtið það, eins og liér skal sagt:
um 1. þareð eigi verður álitið, aö gjörð sé með hinum
almennu ákvörðunum í tilskipun, er nákvæmar ákveður ýmis-
legt viðvíkjandi prestaköllunum á íslandi, 15. desbr. 1865,
5. grein, um eptirlaun prestsekkna, nokkur breyting á hinum
sérstaklegu reglum, sem tilskipun 6. janúar 1847, um fardaga
presta á íslandi, 5. grein*■) hefir inni að halda um það, sem
prestsekkjum ber á árinu frá næstu fardögum eptir andlát prestsins
til fardaga árið eptir, á ekkja Halldórs prófasts Björnssonar, sem
andaðist 13. júní 1869, eigi tilkall til neins hlutar ágóðans
af prestssetrinu á fardagaárinu 1870—71.
um 2. Stjórnarráðið verður að vera stiptsyfirvöldunum
samdóma í því, aðteljaeigi eptirlaun prestsekkjunnar frá fardögum
1871 eptir mati því á tekjum kallsins, sem var í gildi við and-
lát manns hennar, sem er brauðamatsgjörðin frá 1853, þannig
að hún fái ^is af hinum vissu tekjum Sauðaness iprestakalls, að
með töldum ágóðanum af pretssetrinu, samlcvæmt tilskipun 15,
desbr. 1865, 5. grein, og á þann hátt, að presturinn í kallinu
') Lovsamiing for Island, XIII., 571,